ORÐASAFN KYLFINGSINS

 

 

 

 

Ace: Ás (fara holu á einu  höggi).

 

Albatros: Þrjú högg undir pari á holu (t.d. ef par-5 hola er farin á tveimur höggum, eða par-4 hola á einu höggi).

 

Backspin: Bakspurni.

 

Backswing: Baksveifla.

 

Ball: Bolti (ekki kúla).

 

Birdie: Fugl (eitt högg undir pari á holu).

 

Bogey: Skolli (eitt högg yfir pari á holu).

 

Bounds: Vallarmörk (Out of bounds = utan vallar).

 

Break: Halli eða brot (t.d. halli á flöt).

 

Bunker: Glompa, sandglompa. (Svæði eða reitur með sandi í til að gera leik erfiðari).

 

Caddie: Kylfusveinn, hjálparmaður kylfings.

 

Chip: Vippa (Stutt högg þar sem boltanum er lyft, og hann látinn falla inn á flötina).

 

Club: Klúbbur eða félag  - einnig kylfa.

 

Cup: Hola, bikar eða mót.

 

Double-bogey: Tvöfaldur skolli (tvö högg yfir pari á holu) - skrambi.

 

Drive: Teighögg eða upphafshögg. (drifhögg).

 

Driver: Dræver, eða drífari.

 

Driving range: Æfingasvæði.

 

Eagle: Örn (tvö högg undir pari á holu).

 

Fade: Slæva (boltinn sveigir aðeins til hægri í lokin á löngu höggi hjá rétthentum).

 

Fairway: Braut (svæðið milli teigs og flatar, sem er snöggslegið og karginn í kring.

 

Flagstick: Flaggstöng (sem sýnir holustaðsetningu á flöt).

 

Fore: Alþjóðlegt aðvörunarorð í golfi, sem notað er til að vara við ef bolti virðist ætla að lenda á fólki. Hrópa skal fore (foooor!). Heyri kylfingur hrópið skal hann strax snúa baki í áttina sem það kom frá, beygja sig í kút og taka með höndum eða handleggjum yfir höfuðið.

 

Foregreen: Svunta við flatir. 

 

Foursome:  Fjórmenningur.

 

Fourball: Fjórleikur.

 

Forward swing: Framsveifla.

 

Forecaddie: Framvörður (hann fylgist með hvar boltarnir lenda eftir teighögg).

 

Free drop: Frídropp (slangur yfir það að láta bolta falla vítislaust.)

 

Golfer: Kylfingur.

 

Green: Flöt (svæði kringum holuna, sem er sléttara og sneggra en brautirnar).

 

Green-keeper: Vallarstjóri.

 

Group: Ráshópur eða riðill.

 

Hazard: Torfæra (svæði eða reitur með vatni eða sandi til að gera leik erfiðari.)

 

Hit: Slá (ekki skjóta).

 

Hook: Húkka (boltinn er sleginn í boga til vinstri hjá rétthentum kylfingi).

 

Lateral-waterhazard: Hliðarvatnstorfæra.

 

Line: Lína (oftast um púttlínu að ræða).

 

Marker: Ritari, einnig notað um flatarmerki.

 

Match: Leikur.

 

Match-play: Holukeppni.

 

Par: Par (sá fjöldi högga sem góður kylfingur á að leika hverja holu á eða allan völlinn).

 

Penalty: Víti.

 

Pin: Flaggstöng.

 

Pitch: Vippa (svipað högg og chip, nema að boltinn fer lengra og ákveðnar).

 

Practice green: Æfingaflöt.

 

Put: Pútt (þegar boltinn er sleginn að holu á flötinni).

 

Putter: Pútter (potari) (kylfan sem notuð er á flöt).

 

Refferee: Dómari.

 

Rough: Kargi (óræktað svæði utan brautar).

 

Sandwedge: Sandjárn.

 

Score: Skor (höggafjöldi á holu eða öllum vellinum).

 

Scoreboard: Skortafla.

 

Scorecard: Skorkort.

 

Semi-rough: Lúði ( næsta svæði við braut, sem er hálfslegið, þ.e. milli brautar og karga).

 

Slice: Slæsa eðs sneiða (boltinn er sleginn í boga til hægri).

 

Strike: Slá bolta (aldrei skjóta).

 

Swing: Sveifla.

 

Tee: Teigur (reiturinn þar sem upphafshöggið á hverri braut er slegið).

 

Tee: Tí (lítill trétittur sem boltinn er lagður á þegar teighögg er slegið).

 

Waterhazard: Vatnstorfæra.

 

Wedge: Fleygjárn (járnkylfa sem notuð er til að slá stutt högg).