Kylfingur vikunnar að þessu sinni er Davíð Gunnlaugsson úr GKj. Hann er 23 ára gamall og hefur leikið golf frá unga aldri. Hann starfar hjá Golfklúbbnum Kili við að leiðbeina börnunum og unglingum yfir sumartímann og er í laganámi við Háskóla Íslands á veturna. Hann er í sambandi með Heiðu Guðnadóttur sem spilar einnig golf í meistaraflokki. Kylfingur.is fékk Davíð til að svara nokkrum laufléttum spurningum.

Hvenær byrjaðir þú í golfi og hvers vegna?
Byrjaði í golfi c.a. árið 1998. Fór með félögum mínum, Kristjáni og Kára á golfnámskeið hjá golfklúbbnum Kili í Mosfellsbæ. Ég bjó nálægt golfvellinum og foreldrum mínum fannst tilvalið að ég fengi golfsett í afmælisgjöf sem ég var ekki ánægður með á þeim tíma enda hafði ég engan áhuga á að byrja í golfi. Eftir nokkur námskeið var hins vegar ekki aftur snúið og eftir á að hyggja er golfsettið sem ég fékk líklega besta afmælisgjöf sem ég gat fengið.

Hefur þú verið í öðrum íþróttum?
Var í bæði fótbolta og handbolta

Helstu afrek í golfinu?
Ég varð Íslandsmeistari í sveitakeppni unglinga með GKj árið 2005. Einnig hef ég nokkrum sinnum verið á topp-10 í Eimskipsmótaröðinni og spilað í KPMG bikarnum í tvígang. Eigum við samt ekki að vona að helstu afrekin séu ókomin.

Hvað er það neyðarlegasta sem komið hefur fyrir þig á golfvellinum?
Ég sló í kylfusveininn minn, Theodór Emil, á stigamóti í Korpunni fyrir nokkrum árum. Þetta var á 12. brautinni og það var tré sem var í höggstefnunni. Ég smellhitti 9 járnið og boltinn fór beint í tréið og þaðan 90° til hægri þar sem hann lenti í auganu á Tedda sem hrundi í jörðina. Þegar ég lauk leik á holunni var hringnum aflýst vegna veðurs. Gat ekki verið verra. Mín allra versta upplifun á golfvellinum.

Hver er þinn helsti styrkleiki og veikleiki í golfi?
Hef alltaf verið nokkuð öflugur í stuttaspilinu og inn fyrir 100 metrana en kannski slakastur með löngu járnunum.

Hverjir eru uppáhalds kylfingarnir og af hverju?
Ég hef alltaf haldið upp á Tiger Woods og geri enn. Mér finnst Miguel Angel Jimenez einnig mjög skemmtilegur kylfingur. Af innlendum verð ég að segja vinur minn Kristján Þór Einarsson. Frábær kylfingur og besti púttari landsins.

Hefur þú farið holu í höggi eða verið nálægt því?
Ég hef aldrei farið holu í höggi samkvæmt reglunum. Fór samt holu í höggi á fyrstu brautinni í Mosó. Sló fyrst yfir flötina og tók svo annan bolta sem fór í holu. Þetta hlýtur að koma á endanum.

Hver er frægasta persónan sem þú er með í símanum?
Ég held að enginn í símanum mínum flokkist undir það að vera frægur. Ætli það sé ekki helst Þorsteinn Hallgrímsson

Hver er „frægasti“ kylfingurinn sem þú hefur leikið með?
Ég hef nú ekki leikið með mörgum frægum kylfingum. Spilaði þó með fyrrverandi atvinnumanni í amerískum fótbolta á Florida. Af þeim íslensku er líklega Heiðar Davíð Bragason, Magnús Lárusson og Kristján Þór þeir þekktustu hérlendis af þeim sem ég hef leikið með.

Hvaða keppnisfyrirkomulag er skemmtilegast í golfi og hvers vegna?
Erfitt að gera upp á milli. Flest fyrirkomulag hafa sína kosti og galla. Holukeppni er mjög skemmtileg og mætti kannski vera spiluð meira. Einnig mjög gaman að spila foursome í sveitakeppninni.

Ertu hjátrúarfull/ur hvað varðar golf?
Það hefur minnkað undanfarin ár. Er þó alltaf með sama gríngaffalinn í vinstri vasanum og kylfuhreinsinn og eitt tí í hægri vasanum.

Hvert er uppáhaldshöggið í golfi?
Teighögg

Besti golfvöllur sem þú hefur leikið á?
Ætli það sé ekki Condado de Alhama á Spáni

Hvað finnst þér skemmtilegast og leiðinlegast við golf?
Er ekki allt skemmtilegt við golf. Ætli það sé ekki helst hvað íþróttin getur höfðað til breiðs hóps fólks. Allt frá ungum börnum upp í eldra fólk. Það leiðinlegasta er líklega að spila í roki og rigningu.

Hvað er það sem þú þarf mest að bæta í þínum golfleik?
Ég hugsa að það séu þá helst löngu járnin.

Hvaða þrjá golfholur hér á landi eru í sérstöku uppáhaldi?
4. holan á Hlíðavelli í Mosfellsbæ. Skemmtileg par 4 hola sem býður upp á að taka áhættuna í teighögginu og reyna við flötina eða spila öruggt. 2. holan á Garðavelli á Akranesi. Manni líður alltaf eins og maður sé komin erlendis þegar maður spilar þessa braut. Skemmtilegt innáhögg. 10. holan í Keili er virkilega flott par 3 hola.

Staðreyndir
Nafn: Davíð Gunnlaugsson
Aldur: 23 ára
Klúbbur: GKj
Forgjöf: 1,4
Fyrirmynd: Kári Örn félagi minn er magnaður drengur
Ryderinn eða Opna breska? Opna breska
Grafarholt eða Urriðavöllur? Grafarholt
Arnold Palmer eða Gary Player? Arnold Palmer
Uppáhalds matur: Hamborgarhryggur
Uppáhalds drykkur: Pepsi Max
Uppáhalds golfhola: 4. holan á Hlíðavelli
Erfiðasta golfholan: 18. holan á Urriðavelli
Ég hlusta á: Hef alltaf verið mikill Coldplay aðdáandi.
Besti völlurinn: Hlíðavöllur
Besta skor (hvar): 67 á Hlíðavelli
Besta vefsíðan: Facebook
Besta blaðið: Golf á Íslandi
Besta bókin: Hef lítið lesið undanfarin ár annað en skólabækur.
Besta bíómyndin: Gladiator
Besti kylfingurinn: Tiger Woods

Golfpokinn
Dræver: Taylor Made Tour burner
Brautartré: Taylor Made Tour burner – 14,5°
Járn: Callaway X-forged 3-PW
Fleygjárn: Callaway. 54° - 58°
Pútter: Taylor Made – Kia Ma - Maranello
Hanski: Footjoy
Skór: Alltaf Ecco