Einnig á kylfingur.is
Leita
Ýmsar fréttir
Mót í gangi
Golfkennarar
Golfklúbbar
Áhugavert efni
Erlendar golfsíður
Einar Lyng Hjaltason

Einar Lyng Hjaltason er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Hann er menntaður PGA golfkennari og starfar hjá Golfklúbbnum Bakkakoti og hjá Golfklúbbi Hveragerðar. Hann er einnig fararstjóri hjá VITAgolf og hefur verið í þeim bransa í 13 ár. Einar starfar allan ársins hring við útivist og á veturna starfar hann sem skíðakennari í Bláfjöllum. Hann er í sambúð með Rakel Árnadóttur og á fjögur börn. Yngsta dóttir Einars er líklega yngsti meðlimur í golfklúbbi hér á landi svo vitað sé en hún er 16 mánaða gömul og hefur verið félagi í golfklúbbi í eitt ár. Kylfingur.is fékk Einar til að svara nokkrum laufléttum spurningum.
Hvenær byrjaðir þú í golfi og hvers vegna?
Ég byrjaði 1980 á námskeiði hjá Þorvaldi Ásgeirssyni á Hvaleyrinni í Hafnarfirði. Það var eitthvað sem heillaði, sem ég skil ekki.
Hefur þú verið í öðrum íþróttum?
Ég stundaði skíði á mínum yngri árum og geri enn af miklum móð þegar snjór og tími gefst.
Helstu afrek í golfinu?
Klúbbmeistari og nokkrir sætir sigrar í sveitakeppninni.
Færðu aldrei nóg af golfi þegar þú vinnur líka við þetta allan daginn?
Alls ekki. Þetta er alltaf gaman og gefur manni gleði þegar vel gengur.
Hvað er það neyðarlegasta sem komið hefur fyrir þig á golfvellinum?
Man ekki eftir neinu sérstöku. Nema þá að klikka á að öskra ‚fore‘ einu sinni og sá mikið eftir því.
Hver er þinn helsti styrkleiki og veikleiki í golfi?
Styrkurinn eru púttin og drævin. Vippin eru stundum lasin.
Hverjir eru uppáhalds kylfingarnir (innlendur og erlendur) og af hverju?
Miguel Angel Jimenz. Hef hitt hann og fengið mér bjór með honum. Flottur náungi. Og svo Birgir Leifur. Flottur golfari og góð fyrirmynd.
Ef ekki golf þá hvað?
Skíði eða út að hjóla (mótorhjól).
Hefur þú farið holu í höggi eða verið nálægt því?
Á 7. braut í Hveragerði. Bara grís. Hef horft á þetta gerast hjá fimm öðrum þar með talið Sigga P.
Hver er frægasta persónan sem þú er með í símanum?
Það er afstætt hversu frægur sá aðili er.
Hver er „frægasti“ kylfingurinn sem þú hefur leikið með?
Birgir Leifur og Úlfar Jóns.
Hvaða keppnisfyrirkomulag er skemmtilegast í golfi og hvers vegna?
Holukeppni. Do or Die.
Hvert er uppáhaldshöggið í golfi?
Ekkert sérstakt. Gaman af þeim flestum.
Besti golfvöllur sem þú hefur leikið á?
Það eru margir í uppáhaldi en nefni Portmarnock Old course og Lam Ciam Bang.
Hvað finnst þér skemmtilegast og leiðinlegast við golf?
Hvað þetta er fjölbreytt og gaman að vera í góðum félagsskap. Leiðinlegast við golf eru leiðinlegir kylfingar og þeir sem svindla.
Hvað er það sem þú þarf mest að bæta í þínum golfleik?
Vippin. Gefa sér tíma til að æfa þau.
Getur þú sagt okkur frá eftirminnilegri golfsögu af þínum golfferli?
Átti að fá að spila með Jimenez en guð sá um að vökva golfvöllinn þann daginn svo ekkert varð af því. Ég á það inni og það verður fljótlega sem við náum hring. Svo var það að ég var að keppa í stigamóti í Eyjum og ég var á 16 braut. Vindur óhagstæður fyrir örvhennta og ég missti tvo í hafið. Þá tók ég til minna ráða og setti þann þriðja í vatnið á 18. braut.
Hvaða þrjá golfholur hér á landi eru í sérstöku uppáhaldi?
16. holan í Eyjum út af þessu í mótinu. 7. holan í Hveragerði því hún fór svo vel með mig og 12. holan á Urriðavelli því þar kom fyrsti örninn í lífinu, ekki það að hún sé skemmtileg. Fyrsta fugla holan er ekki til lengur en var nr. 13. í Keili hér áður og liggur með 18. braut.
Staðreyndir:
Nafn: Einar Lyng Hjaltason
Aldur: 41
Klúbbur: GOB
Forgjöf: 4,0
Fyrirmynd: Ingimar Stenmark
Ryderinn eða Opna breska? Ryderinn
Grafarholt eða Vestmannaeyjar? Vestmannaeyjar
Norman eða Faldo? Norman, eigum sama afmælisdag
Uppáhalds matur: Nautið frá strákunum í Kjötsmiðjunni
Uppáhalds drykkur: Vatn
Uppáhalds golfhola: Yfir gilið á Hlíðavelli
Erfiðasta golfholan: 18. á Urriðavelli
Ég hlusta á: Allt mögulegt. Ef það er í útvarpinu þá X-ið eða Rás 2
Besti völlurinn: Úff erfitt að gera upp á milli.
Besta skor: 71 (-1) í Meistaramóti hjá Oddi og 70 (-2) í Meistaramóti í Hveragerði.
Besta vefsíðan: Gaflarar.com
Besta blaðið: Ekki neitt sérstakt
Besta bókin: Da Vinci lykillinn
Besta bíómyndin: Trainspotting
Besti kylfingurinn: Jimenez
Golfpokinn
Dræver: TayorMade R9
Brautartré: TayorMade R9
Járn: TayorMade R7
Fleygjárn: TayorMade Z 52 56 60
Pútter: TayorMade Kiama Daytona
Hanski: Sem er ekki með gati.
Skór: Nr. 44







