Fréttir
Leita
Ýmsar fréttir
Mót í gangi
Golfkennarar
Golfklúbbar
Áhugavert efni
Sverrir Þór Sverrisson
Sjónvarpsmaðurinn litríki, Sverrir Þór Sverrisson eða Sveppi eins og hann er jafnan kallaður, er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Sveppi hefur verið mjög áberandi á undanförnum árum og er orðinn einn af ástsælustu sjónvarpsmönnum þjóðarinnar en hann hefur einnig leikið í bíómyndum og leikritum. Kylfingur.is fékk hann til að svara nokkrum spurningum um sig og golfið.
Hvenær byrjaðir þú í golfi og hvers vegna?
„Ég byrjaði fyrir svona 5 árum síðan, og aðalástæðan var að ég fékk golfsett á svo góðu verði.“
Hefur þú verið í öðrum íþróttum?
„Undrabarn í handbolta og lunkinn fótboltamaður.“
Hver eru helstu markmiðin?
„Að koma forgjöfinni niður fyrir 36.“
Helstu afrek í golfinu?
„Tólf metra pútt í roki og rigningu“
Hvað er það neyðarlegasta sem komið hefur fyrir þig á golfvellinum?
„Ég og pabbi á Korpu, eldsnemma um morgun og fjórir kallar voru að hleypa okkur fram úr og ég tók upphafshögg sem endaði í bakinu á einum manninum.“
Ferðu í golfferð til útlanda í ár og ef þá hvert?
„Ekkert planað, en aldrei að vita að maður skelli sér.“
Hvað ætlar þú að gera til að lækka forgjöfina næsta sumar?
„Reyna að fara oftar í golf, fer alltof sjaldan.“
Hver er þinn helsti styrkleiki og veikleiki í golfi?
„Veikleikinn er klárlega upphafshöggin, verð oft svo stressaður. En púttin eru styrkleikinn.“
Hver er uppáhalds kylfingurinn (innlendur og erlendur) og af hverju?
„Tigerinn, alltaf gaman að horfa á hann.“
Ef þú mættir breyta einni golfreglu hverju myndir þú breyta?
„Klæðnaðurinn, mér finnst að maður megi vera í hverju sem er.“
Atvinnumaður í fótbolta eða golfi?
„Fótbolti til 35ára og golf eftir það.“
Fylgist þú mikið með golfi (erlendum mótum eða mótaröðinni hér heima)?
„Já, ég horfi oft á lokadaginn á stórmótum.“
Staðreyndir:
Nafn: Sverrir Þór Sverrisson
Klúbbur: Ekki í klúbb
Forgjöf: 36
Golfpokinn: Hummm...veit ekki
Golfskór: Já, hvítir með göddum
Golfhanski: Neinei
Markmið í golfinu: Komast undir 100 högg á 18 holum
Fyrirmynd: Pabbi
Uppáhalds matur: Sushi
Uppáhalds drykkur: Kók
Ég hlusta á: Gamla tónlist
Besti völlurinn: Grafarholtið
Besta skor (hvar): Man ekki, ekkert eftirminnilegt
Besta vefsíðan: Baggalutur.is
Besta blaðið: Kvikmyndablaðið
Besta bókin: Þær eru nokkrar,
Besta bíómyndin: Forrest gump
Myndir/Kylfingur.is
jjk@vf.is


