Nökkvi Gunnarsson


Nökkvi Gunnarsson er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Þessi högglangi og flinki kylfingur úr Nesklúbbnum, leikur á Eimskipsmótaröðinni í golfi og varð Klúbbmeistari NK í fyrsta sinn í sumar. Hann er giftur Ellen Rut Guðmundsdóttir og starfar sem golfkennari hjá Nesklúbbnum. Við fegnum Nökkva til að svara nokkrum laufléttum spurningum. Hvenær byr..


Meira



Karen Guðnadóttir


Karen Guðnadóttir úr Golfklúbbi Suðurnesja er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Hún hefur verið afar sigursæl í stúlknaflokki á Arion-banka mótaröðinni og varð bæði Íslandsmeistari í höggleik og holukeppni ásamt því að verða klúbbmeistari GS. Hún er 18 ára gömul og er yngri systir Heiðu Guðnadóttur sem leikið hefur á mótaröðinni á undanförnum áru..


Meira



Karl Haraldsson


Karl Haraldsson, kylfingur úr Golfklúbbi Vestmannaeyja, er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Hann er 26 ára Eyjapeyi, er golfkennari að mennt og er einnig að ljúka viðskiptafræði frá Háskóla Íslands. Karl hefur yfirumsjón með allri golfkennslu fyrir Golfklúbb Vestmannaeyja og lauk námi úr PGA-golfkennaraskólanum á síðasta ári. Við fengum að kynna..


Meira



Einar Tryggvason


Einar Tryggvason, vallarstjóri á Haukadalsvelli, er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Hann er giftur Ágústu Þórisdóttur og eiga þau og reka Haukadalsvöll ásamt Gistiheimilinu Geysi en völlurinn hefur notið nokkurra vinsælda. Þrátt fyrir að vera vallarstjóri á einum af erfiðustu völlum landsins, þá er Einar ekki mikill kylfingur en hann er með 36 ..


Meira



Birkir Már Birgisson


Birkir Már Birgisson, vallarstjóri á Grafarholtsvelli, er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Hann hefur starað að golfvallaumhirðu í 11 ár og var m.a. fyrsti Íslendingurinn til að starfa á Ryder-bikarnum og vann á K-Club vellinum í Ryder-bikarnum þegar hann var þar leikinn árið 2006. Birkir Már lærði golfvallaumhirðu í Elmwood skólanum í Skotlan..


Meira



Björgvin Smári Kristjánsson


Björgvin Smári Kristjánsson úr GKG er kylfingur vikunnar. Hann er 22ja ára gamall og kom nokkuð á óvart í Fitness Sport mótinu á Eimskipsmótaröðinni sem fram fór á Leirdalsvelli fyrir skömmu. Hann lenti í 9. sæti í mótinu og var í toppbaráttunni eftir fyrri hringinn. Hann hefur lítið keppt undanfarin ár vegna meiðsla. Hann útskrifaðist um síðustu ..


Meira



Geir Sigurður Jónsson


Geir Sigurður Jónsson er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Geir er viðskiptafræðingur með mastersgráður í tölvunarfræði. Hann stofnaði og sér um vefsíðuna Golfheimar.is sem vinnur úrvalslista og tölfræði út frá öllum skráðum hringjum. Geir er nokkuð flinkur í golfi enda er hann með 5,9 í forgjöf þó að forgjafarþróunin hafi verið í ranga átt að un..


Meira



Valtýr Björn Valtýsson


Valtýr Björn Valtýsson, íþróttafréttamaður og stjórnandi útvarpsþáttarins Mín Skoðun á X-977, er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Hann er tveggja barna faðir og er með 16,3 í forgjöf. Kylfingur.is fékk íþróttafréttamanninn geðþekka til að svara nokkrum skemmtilegum spurningum og golfið. Hvenær byrjaðir þú í golfi og hvers vegna? „Það má ..


Meira



Helgi Dan Steinsson


Helgi Dan Steinsson úr GL er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Hann lék best allra á opnunarmóti Garðavallar á dögunum og lék þar á 73 höggum eða einu höggi yfir pari. Hann starfar hjá Nesbyggð ehf. í Reykjanesbæ þar sem hann er búsettur en hann er í sambúð með Júlíu Jörgensen og eiga þau börn saman. Hann er að útskrifast í vor frá Fjölbrautask..


Meira



Jóhann Friðbjörnsson


Jóhann Friðbjörnsson, formaður GKB, er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Hann er 51 árs húsasmíðameistari og hefur unnið við sjálfstæðan rekstur í byggingariðnaði frá því að hann lauk námi. Jóhann er einn af fjórum stofnendum og eigendum að fyrstu alvöru golfverslun landsins, Nevada Bob, en seldi fyrirtækið árið 2006. Jóhann er framtakssamur og h..


Meira



Hrafn Guðlaugsson


Kylfingur vikunnar að þessu sinni er austfirski kylfingurinn Hrafn Guðlaugsson frá Egilsstöðum. Hann er 19 ára gamall og stundar nám við Menntaskólann á Egilsstöðum. Síðasta sumar starfaði hann sem vallarstjóri á Ekkjufellsvelli en fótbrotnaði í knattspyrnu í júlí sem batt enda á þá vinnu og golfsumrinu. Hann ætlar að taka komandi sumar með miklu ..


Meira



Hinrik Gunnar Hilmarsson


Hinrik Gunnar Hilmarsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Margir kannast við Hinrik en hann starfar við eftirlit, vallarvörslu og dómgæslu hjá GR yfir sumartímann. Yfir vetratímann starfar hann sem vagnstjóri hjá Strætó og við hjá Kylfingi.is fengum hann til að segja okkur aðeins frá golfinu sínu. Hvenær byrjaðir þú ..


Meira



Halla Sif Svavarsdóttir


Halla Sif Svavarsdóttir, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Akureyrar, er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Hún tók við starfinu aftur í desember árið 2006 en hún sinnti því einnig árin 1997 til 2000. Hún varð fimmtug núna í janúar og er að eigin sögn á besta aldri. Hún er gift Stefáni Jónssyni Byggingameistara og byggingariðnfræðingi en þau eiga saman ..


Meira



Tryggvi Guðmundsson


Knattspyrnumaðurinn Tryggvi Guðmundsson er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Þessi Eyjapeyi leikur með ÍBV en hefur leikið með FH undanfarin ár og hefur verið sigursæll í Hafnarfirðinum. Tryggvi á að baki farsælan atvinnumannaferil í knattspyrnu og á að baki 42 landsleiki fyrir Íslands hönd. Hann er giftur Hrafnhildi Gunnarsdóttur og eiga þa..


Meira



Anna Björk Birgisdóttir


Anna Björk Birgisdóttir er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Hún er 43ja ára gömul og hefur farið á kostum í púttmótaröð GR kvenna í vetur og er efst í mótaröðinni þegar tveimur mótum er ólokið. Anna er gift tónlistarmanninum og söngvaranum landsfræga, Stefáni Hilmarssyni, og eiga þau tvo drengi, 5 og 17 ára. Hún hefur starfað við fjölmiðla og ky..


Meira



Stefán Garðarsson


Kylfingur vikunnar að þessu sinni er Stefán Garðarsson, markaðs- og sölustjóri hjá Golfsambandi Íslands. Stefán hefur starfað hjá GSÍ frá árinu 2007 en var áður sölustjóri hjá Smjörlíki-Sól hf. og hjá Vífilfelli, umboðsaðila Coca Cola á Íslandi. Hann er kvæntur Laufhildi Hörpu Óskarsdóttur og eiga þau saman þrjár dætur 14, 15 og 21 árs. Stefán fél..


Meira



Sverrir Þór Sverrisson


Sjónvarpsmaðurinn litríki, Sverrir Þór Sverrisson eða Sveppi eins og hann er jafnan kallaður, er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Sveppi hefur verið mjög áberandi á undanförnum árum og er orðinn einn af ástsælustu sjónvarpsmönnum þjóðarinnar en hann hefur einnig leikið í bíómyndum og leikritum. Kylfingur.is fékk hann til að svara nokkrum spurnin..


Meira



Þuríður Gísladóttir


Þuríður Gísladóttir er kylfingur vikunnar að þessu sinni en hún starfar sem framkvæmdastjóri Golfklúbbs Hveragerðis og hefur gert frá því í maí á síðasta ári. Hún er fertug að aldri, á fjögur börn og er gift Vigni Demusyni. Árið 2006 útskrifaðist hún sem viðskiptafræðingur frá Bifröst. Við fengum hana til að svara nokkrum spurningum um golfið.&nbs..


Meira



Logi Bergmann Eiðsson


Logi Bergmann Eiðsson, sjónvarpsmaður, er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Flestir ættu að kannast við Loga enda hefur hann verið reglulegur gestur á sjónvarpsskjá landsmanna um árabil. Hann er 43 ára, á sex börn og þrjá ketti. Hann er sem stendur að klára nám í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Við fengum Loga til að svara nokkrum spurning..


Meira



Ríkharð Óskar Guðnason


Kylfingur vikunnar að þessu sinni er enginn annar en Ríkharð Óskar Guðnason, betur þekktur sem Rikki G á útvarpsstöðinni FM957. Hann er fæddur árið 1985 og er uppalinn Reykvíkingur. Hann hefur starfað sem útvarpsmaður á FM957 frá árinu 2004 og stýrir þættinum „Betri blandan“ sem og að kynna Íslenska listann á stöðinni. Hann er trúlofað..


Meira



Jón Björn Ólafsson


Jón Björn Ólafsson er kylfingur vikunnar að þessu sinni, en hann hefur stundað íþróttina með hléum í nokkur ár. Jón Björn er fæddur og uppalinn Njarðvíkingur, með BA próf í íslensku frá HÍ, með fjölmiðlafræði sem aukafag, og starfar nú hjá Íþróttasambandi fatlaðra. Auk þess er hann eigandi og ritstjóri körfuboltavefsins www.karfan.is og starfað..


Meira



Hreimur Örn Heimisson


Hreimur Örn Heimisson, betur þekktur sem Hreimur úr Landi og sonum, er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Þessi geðþekki söngvari hefur stundað golf í átta ár en hann starfar sem verslunarstjóri hjá PRODOMO og er kvæntur, tveggja barna faðir. Flestir hafa heyrt af árangri hans í tónlistinni og því ærið tilefni í að spyrja Hreim út í golfið og forg..


Meira



Hrafnkell Kristjánsson


Hrafnkell Kristjánsson, íþróttafréttamaður á Ríkisútvarpinu, er kylfingur vikunnar að þessu sinni og tekur hann við keflinu af Henrý Birgi Gunnarssyni eins og sést hér á myndinni til hægri. Hann er 34 ára Hafnfirðingur og er með BA próf í sálfræði frá University of South Alabama. Hann er liðtækur kylfingur og er með um 8.9 í forgjöf.  Hvenær..


Meira



Henry Birgir Gunnarsson


Henry Birgir Gunnarsson, íþróttablaðamaður, er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Hann er Deildarstjóri íþrótta á Fréttablaðinu og Vísi. Eitraður penni og jafnan með puttann á púlsinum. Hann er 32ja ára gamall Húsvíkingur og er trúlofaður Hildi Sigurðardóttir. Henry Birgir á tvö börn, Ísak Daða, 6 ára, og Ísabellu, 4. ára. Hvenær byrjaðir þú í gol..


Meira



Heiðar Davíð Bragason


hefur vakið athygli fyrir vasklega framgöngu í golfinu, sérstaklega í fyrra er hann sigraði óvænt í Opna spænska áhugamannamótinu. Þá sigraði hann á einu stigamóti, á Toyotamótaröðinni, en það mót varið haldið í Leirunni. Nú í byrjun maí varð hann í 6.-8. sæti á Opna enska áhugamannameistaramótinu og lék lokahringinn á 67 höggum og var aðeins einu..


Meira



Helena Árnadóttir


landsliðskona í golfi frá Akureyri vakti athygli í fyrra er hún setti vallarmet á fyrsta hring Íslandsmótinu á Garðavelli á Akranesi og var lengi vel með forystu í mótinu. Hún hafnaði í þriðja sæti eftir að hafa tapað fyrir Tinnu Jóhannsdóttur úr GK í bráðabana um annað sætið. Þá var hún í öðru sæti á Íslandsmótinu í holukeppni 2003. Helena hefur ..


Meira



Ólafur Björn Loftsson


þykir mjög efnilegur kylfingur. Hann sigraði í flokki pilta 16-18 ára á fyrsta stigamóti unglinga, KB-bankamótaröðinni, á Hólmsvelli í Leiru um síðustu helgi. Ólafur Björn á ekki langt að sækja golfhæfileikana því foreldrar hans, Loftur Ólafsson og Kristín Björnsdóttir, eru bæði í golfi og afi hans og alnafni var einn af stofnendum Nesklúbbsins. &..


Meira



Helgi Birkir Þórisson


er fæddur í Reykjavík 1975 en uppalinn í bítlabænum Keflavík. Hann byrjaði í golfi 11 ára gamall - tók þátt í sínu fyrsta móti erlendis 15 ára og þá með 4 í forgjöf. Helgi var í 16-18 ára unglingalandsliðum og síðan í A-karlalandsliðum til 28 ára aldurs. Helstu afrek hans hérlendis eru Íslandsmeistari holukeppni 1999, sveitakeppni 1996 . Klúbbmeis..


Meira



Sigurberg Guðbrandsson


er efnilegur kylfingur úr GK. Hann hefur tvívegis farið holu í höggi á 13 mánuðum og geri aðrir betur. Hann á ekki langt að sækja golfbakteríuna því hann er sonur Guðbrandar Sigurbergssonar, sem er bróðir Björgvins Sigurbergssonar landsliðskylfings, og Þórdísar Geirsdóttur, fyrrum íslandsmeistara og landsliðskylfings. „Ég er kominn úr stór..


Meira



Tryggvi Traustason


úr GSE sigraði í 1. flokki karla á Íslandsmóti 35 ára og eldri sem fram fór á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði um síðustu helgi. Hann varð einnig meistari fyrir þremur árum. Tryggvi þekkir vel til á Hvaleyrinni þar sem hann var í GK í 30 ár, eða frá því hann var 11 ára gamall. Hann skipti um klúbb fyrir tveimur árum og færði sig yfir á Setbergið. Hann..


Meira



Sigurpáll Geir Sveinsson


varð Íslandsmeistari síðast þegar mótið fór fram á Hólmsvelli í Leiru árið 1998. Þá sigraði hann þegar mótið var haldið á Akureyri 1994 og lék sama leikinn árið 2002 á Hellu. Að loknum þremur mótum á Toyotamótaröðinni í ár er hann efstur að stigum. Hann er Akureyringur og keppti ávallt fyrir GA, en í vor fluttist hann suður og keppir nú undir merk..


Meira



Nína Björk Geirsdóttir


hefur vakið athygli fyrir vasklega framgöngu í golfinu í sumar. Hún er 21 árs og byrjaði að æfa golf hjá Golfklúbbnum Kili í Mosfellsbæ 10 ára gömul og hefur verið þar síðan. Nína Björk var lengi vel með í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn í Leirunni, en gaf aðeins eftir á lokasprettinum. Hún var í öðru sæti á stigamóti GSÍ, Ostamótinu á Toyot..


Meira



Ottó Sigurðsson


varð Íslandsmeistari í holukeppni 2005 á Hvaleyrinni og var þetta fyrsti stóri titill hans á ferlinum. „Ég kynntist fyrst golf á hinum ágæta velli í Öndverðanesi þar sem ég fór oft með vini mínum í bústað. Flutti síðan til Vestmannaeyja um 12 ára aldur og gekk í golfklúbbinn þar og þá var ekki aftur snúið. Þorsteinn Hallgrímsson var þar með ..


Meira



Hanna Lilja Sigurðardóttir


hefur staðið sig vel í golfinu í sumar og þegar hampað þremur Íslandsmeistaratitlum. Hún er Íslandsmeistari unglinga í höggleik og holukeppni í flokki 16-18 ára stúlkna og um síðustu helgi varð hún Íslandsmeistari í 1. deild kvenna með GR. Hún byrjaði að æfa golf þegar hún var 14 ára. „ Ég varð bara að prufa golfið eftir mikla kaddý-reynslu ..


Meira



Arna Rún Oddsdóttir


hefur vakið athygli fyrir góða frammistöðu í flokki 16-18 ára stúlkna á mótum sumarsins. Hún byrjaði að stunda golf á Húsavík þegar hún var 11 ára gömul. „Bræður mínir voru í golfi og það leiddi til þess að ég fór upp á völl og prófaði. Ég æfði ein á Húsavík öll mín ár í golfi. Á sumrin kom yfirleitt þjálfari frá Akureyri einu sinni í viku, ..


Meira



Kristján Þór Einarsson


var valinn í íslenska landsliðið sem tók þátt í Evrópumóti áhugamanna í Brussel á dögunum. Hann er Íslandsmeistari unglinga í holukeppni og þá varð hann einnig Íslandsmeistari í sveitakeppni, bæði með karlaliði GKj og unglingaliði GKj. Hann hefur einnig æft knattspyrnu með HK og á þrjá Íslandsmeistaratitla með félaginu í yngri flokkum.  &bdqu..


Meira



Tinna Jóhannsdóttir


sigraði á lokamótinu á Toyotamótaröðinni sem fram fór á Korpúlfsstaðavelli og lék sína bestu hringi ársins þar. Tinna er talin ein högglengsta golfkona landsins og átti m.a. lengsta teighöggið á Íslandsmótinu á Leirunni í sumar. Hún byrjaði að æfa golf þegar hún var 12 ára. “Ég byrjaði á því að fara á golfnámskeið og fór svo beint að æfa í f..


Meira



Hlynur Geir Hjartarson


vakti athygli fyrir vasklega framgöngu í lokamótinu á Toyotamótaröðinni og sigraði eftir jafna og spennandi keppni við Heiðar Davíð Bragason. Þetta er í fyrsta sinn sem hann komst á verðlaunapall á Toyotamótaröðinni og má segja að hann hafi komið Selfossi á kortið í golfinu með árangri sínum. Þá var hann útnefndur Zo-on kylfingur ársins á Lokahófi..


Meira



Pétur Freyr Pétursson


er einn efnilegasti kylfingur landsins. Hann hefur sýnt og sannað með árangri sínum að hann er meðal fremstu kylfinga í sínum aldursflokki í Evrópu. Hann stóð sig vel á Norðurlandamótinu í Noregi og lék lokahringinn á hinum erfiða Hauger-velli á einu höggi yfir pari.  Pétur Freyr byrjaði í golfi sumarið 1999, eftir að fjölskylda hans flutti í..


Meira



Sveinn Ísleifsson


vakti athygli fyrir vasklega frammgöngu í unglingaeinvíginu "shoot out" í Mosfellsbæ á dögunum. Hann gerði sér lítið fyrir og sigraði þrátt fyrir að vera með mun hærri forgjöf en flestir keppinauta hans. Sveinn hefur stundað golf í aðeins fögur sumur og segist stefna að því að lækka forgjöfina í framtíðinni. Hann er í 10. bekk í Lágafell..


Meira



Þórður Rafn Gissurarson


er stigameistari GSÍ í flokki 16-18 ára og hann varð einnig Íslansmeistari í höggleik í þessum  flokki bæði í ár og í fyrra. Þessi efnilegi kylfingur úr GR er afskaplega prúður og yfirvegaður. Hann ætlar sér stóra hluti í golfinu og langtíma markmið hans er að keppa á evrópsku mótaröðinni. “Það yrði algjör draumur að komast þangað.&rdqu..


Meira



Signý Arnórsdóttir


úr GK er einn efnilegasti kylfingur landsins. Hún varð Íslandsmeistari í holukeppni og stigameistari í flokki 14-15 ára. Þá var hún  Íslandsmeistari í sveitakeppni með GK annað árið í röð. Í haust komst hún síðan inn í landsliðshópinn. Hún byrjaði í golfi fyrir tveimur árum. „Ég byrjaði að fara með Rúnari bróður mínum út á golfvöll,&nbs..


Meira



Sigmundur Einar Másson


kylfingurinn efnilegi úr GKG stundar nám í fjármálahagfræði við McNeese State University í Bandaríkjunum, er á öður ári. Hann stundar einnig golfið af miklum krafti með skólanum.  Hann var spurður að því hvenær hann hafi byrjað í golfi og hvers vegna? „Ég byrjaði í golfi í júlí 1996. Hafði prófað að slá nokkur högg með vini mínum n..


Meira



Heiða Guðnadóttir


er efnilegur kylfingur úr Golfklúbbi Suðurnesja.  Hún er 16 ára gömul, fædd sama dag og bandaríska undrabarnið í golfinu, Michelle Wie. Heiða hefur einnig æft sund og fótbolta í Keflavík og stundar nú nám í Fjölbrautarskóla Suðurnesja, og er samhliða í Íþróttaakademíunni í Reykjanesbæ þar sem hún er með golf sem sérgrein. Hvenær byr..


Meira



Axel Bóasson


hefur látið til sín taka í golfinu þrátt fyrir ungan aldur. Hann á ekki langt að sækja hæfileikana því hann kemur úr mikilli golffjölskyldu í Hafnarfirði, Sigurbergsfjölskyldunni. Hann var Íslandsmeistari í höggleik í flokki 14-15 ára 2005 og  hefur verið klúbbmeistari GK í sínum aldursflokki sl. fjögur ár. Hann er sonur Kristínar Sigurbergsd..


Meira



Ásta Birna Magnúsdóttir


hefur vakið athygli fyrir góða frammistöðu á KB-bankamótaröðinni og vann m.a. fyrsta mót ársins í Leirunni. Hún kemur frá Djúpavogi og hefur stundað golf síðan hún var 8 ára gömul. Hún hóf nám í Menntaskólanum í Kópavogi haustið 2004, er á náttúrufræðibraut og  gekk í Keili haustið 2003 og hefur keppt fyrir klúbbinn síðan. Ásta Birna hefur st..


Meira



Stefán Már Stefánsson


kylfingur úr GR var kjörinn efnilegasti pilturinn á Toyotamótaröðinni á síðasta keppnistímabili. Hann verður tvítugur 15. mars á þessu ári. Hann byrjaði í golfi fimm ára og hefur stundað íþróttina af kappi frá 11 ára aldri og er margfaldur unglingameistari. Hann er í afrekshópi GSÍ og fer með landsliðinu í æfingaferð til Flórída 10. janúar. F..


Meira



Eygló Myrra Óskarsdóttir


er mikil íþróttakona úr Garðabæ og hefur æft sund, fimleika og golf og er auk þess í ballet. Árangurinn í golfinu er athyglisverður þar sem hún hefur m.a. orðið Íslandsmeistari í holukeppni unglinga og stigameistari unglinga. Þá lék hún Vífilsstaðavöll sl. sumar á 73 höggum, eða 3 höggum yfir pari og lækkaði sig um 2,5 í forgjöf á þessum ei..


Meira



Elísabet Oddsdóttir


varð Íslandsmeistari í höggleik unglinga 14-15 ára í Vestmannaeyjum sl. sumar. Hún var yngsti keppandinn á Íslandsmótinu í Leirunni sl. sumar, aðeins 14 ára. Hún hefur búið með foreldrum sínum í  Danmörku í sjö ár og æfir þar með golfklúbbnum Vallenbæk. Þar er hún í afrekshópi kvenna og er núverandi klúbbmeistari, en er jafnframt meðlimur í G..


Meira



Ingi Rúnar Gíslason


er golfleiðbeinandi hjá Golfklúbbnum Kili í Mosfellsbæ þar sem hann hefur náð athyglisverðum árangri.  Auk þess hefur hann verið í fararstjórn í golfferðum hjá Úrval-Útsýn og þá hefur hann öðru hverju verið við afgreiðslustörf í golfverslun Nevada Bob. Ingi Rúnar þykir léttur og skemmtilegur og það er ávallt stutt í brosið. Hann byrjaði í g..


Meira



Björn Guðmundsson


er efnilegur kylfingur úr Golfklúbbi Akureyrar. Hann vakti mikla athygli á fyrsta stigamótinu á Hellu í fyrrasumar, lék þá annan  hringinn á 66 höggum, sem var næst besta skorið í mótinu. Þá varð hann Norðurlandsmeistari í karalfokk á Jaðarsvelli i sl. sumar. Björn varð 16 ára 11. janúar sl. og er með 3,0 í forgjöf. „Ég spilað..


Meira



Magnús Lárusson


er einn högglengsti kylfingur landsins og gengur oft undir nafninu “Maggi sleggja” meðal félaga í golfinu. Hann er Mosfellingur í húð og hár og eru foreldrar hans Lárus Halldórsson og Anna Þóra  Stefánsdóttir. Þá á hann einn bróður sem heitir Halldór. Helstu afrek Magnúsar í golfinu eru: Íslandsmeistari unglinga 2002 og 2003. Ísla..


Meira



Rúnar Óli Einarsson


er 22 ára smiður og er í afrekshópi GSÍ. Hann byrjaði að æfa golf þegar hann var 14 ára og er í Golfklúbbi Reykjavíkur. Rúnar Óli segir að frænka sín og frændi hafi platað sig í golfið á sínum tíma. “Ég fékk strax golfdelluna og hætti þá fljótlega í fótbolta sem ég hafði stundað í 10 ár. Var reyndar líka í körfubolta,” sagði hann. ..


Meira



Axel Ásgeirsson


er einn af  efnilegustu kylfingunum hjá Golfklúbbi Reykjavíkur. Hann er í 10. bekk í  Korpuskóla, sem er við Korpúlfsstaðavöllinn og á því stutt að sækja í golfið. Hann byrjaði að æfa golf þegar hann var 8 ára gamall og fór fyrst með foreldum sínum. Axel hefur æft bæði fótbolta og handbolta, en golfið á nú hug hans allan. Hann hef..


Meira



Pétur Óskar Sigurðsson


er kylfingur úr GR  og hefur allt frá fæðingu verið með golfið í blóðinu enda faðir hans,  Sigurðar Péturssonar, marfaldur Íslandsmeistari í golfi. Pétur Óskar er fjórfaldur Íslandsmeistari í Sveitakeppni unglinga með GR, tvöfaldur Íslandsmeistari í Sveitakeppni karla með GR. Sigraði Meistaramót Odds árið 2000 og hef tvívegis tekið sil..


Meira



Helga Rut Svanbergsdóttir


varð Íslandsmeistari í holukeppni 2003 og markaði það spor fyrir Golfklúbbinn Kjöl í Mosfellsbæ þar sem hún var fyrsta konan til að ná í þennan titil fyrir klúbbinn. “Ég byrjaði í golfi þegar ég var 10 ára gömul, þá sendi pabbi mig á golfnámskeið hjá GKj. Þar kynntist ég mínum elskulegu “golf” vinkonum, Nínu, Katrínu, Evu og..


Meira



Guðjón Henning Hilmarsson


er nýlega genginn til liðs við Golfklúbbinn Kjöl í Mosfellsbæ, en hann var áður í GKG. Hann er þrefaldur unglingameistari og hefur verið fastamaður í unglingalandsliðinu undanfarin ár. Guðjón er á öðru ári í Verzlunarskóla Íslands.   Hefur þú verið í öðrum íþróttum, en golfi? “Ég æfði handbolta í stuttan tíma og borðtennis í tvö ..


Meira



Sigurður Rúnar Ólafsson


er kylfingur úr GKG og er í viðskiptafræði í Háskóla Íslands. Unnusta hans er Guðfinna Halldórsdóttir, sem er afrekskylfingur í GKG. Sigurður Rúnar sigraði í púttmóti, sem Kylfingur.is og Sporthúsið stóðu að  í síðasta mánuði.  “Ég steig mín fyrstu skref í golfinu á Víkurvelli í Stykkishólmi þegar ég var  11 ára. Næs..


Meira



Brynjar Eldon Geirsson


er yfirkennari hjá GKG og yfirmaður golfdeildar  hjá Íþróttaakademíunni í Reykjanesbæ. Hann útskrifaðist sem  golfkennari frá PGA þýskalandi 2003. Við kynnum hann sem kylfing vikunnar að þessu sinni.  “Ég byrjaði í golfi 8 ára gamall með nokkrum félögum mínum hjá golfklúbbnum Keili. Ólst þar upp með strákum eins og Ólafi Má..


Meira



Valdís Þóra Jónsdóttir


er 17 ára Skagastelpa og hefur verið í stúlknalandsliðshópi Golfsambandsins og er þetta annað árið hennar í þeim hópi. “Ég fæddist nú inní rosalega golffjölskyldu þannig að ég býst við að það hafi alltaf legið fyrir að ég færi í golfíþróttina. Öll mín fjölskylda er í golfi ásamt ömmu og afa og fleiri ættingjum. Ég tók þátt í fyrsta golfmót..


Meira



Grímur Þórisson


er kylfingur úr GR og vann sér það til ágætis að sigra í golfmóti Nevada Bob og Úrvals-Útsýnar á Matalascanas á Spáni fyrir skömmu. Hann er fæddur á Ólafsfirði 09.09.1965 og á ættir að rekja vestur á Snæfellsnes (Hellisands). “Ég byrjaði í golfi árið1977 líklega af því að við fundum einhverjar golfkúlur á víðavangi. Pabbi félaga míns ..


Meira



Anna Lísa Jóhannsdóttir


er í afrekshópi Golfklúbbs Reykjavíkur og þá hefur hún átt fast sæti í íslenska landsliðinu. Hún stundar nám í sálfræði við Richmond the International University i London, en verður að vinna í sumar með krökkum á Móaflöt i Garðabæ. „Ég byrjaði að fikta við að slá golfkúlu eða pútta þegar ég var 10 ára, en byrjaði ekkert að spila fy..


Meira



Þórdís Geirsdóttir


er kylfingur úr GK í Hafnarfirði og var m.a. í þriðja sæti á Ostamótinu á Akranesi um síðustu helgi. Hún hefur sýnt og sannað að lengi er hægt að bæta sig í íþróttinni. Þórdís hefur verið betri með hverju árinu sem líður, eins og rauðvínið. Hún er  gift Guðbrandi Sigurbergssyni og eiga þau þrjá syni;  Sigurberg 18 ára , Geir 15 ára og Þr..


Meira



Haraldur Hilmar Heimisson


úr GR setti glæsilegt vallarmet á Korpunni á sunnudaginn er hann lék hringinn á 66 höggum, eða 6 höggum undir pari. Hann lék seinni níu holurnar á 5 höggum undir pari. Haraldur hefur verið í GR síðan 1990 og er nú fjármálastjóri klúbbsins. Hann er  er 25 ára, fæddur og uppalinn í Reykjavík. Stúdent frá Verslunarskóla Íslands og er með ..


Meira



Ólafur Már Sigurðsson


er kylfingur úr Golfklúbbi Reykjavíkur. Hann sigraði í Carlsbergmótinu í Vestmanneyjum og var það jafnframt fyrsti sigur hans á íslensku mótaröðinni. Ólafur Már byrjaði  í golfi 13 ára gamall, á Hvaleyrinni í Hafnarfirði. Það var afi hans, Ólafur Gíslason, sem dró hann fyrst upp á völl og kenndi honum undirstöðuatriðin í íþróttinni. ..


Meira



Arnór Ingi Finnbjörnsson


er efnilegur kylfingur úr GR. Hann hafnaði í öðru sæti í tveimur fyrstu stigamótunum á KB-banka mótaröðinni í ár. Hann byrjaði að æfa hjá GR vorið 2001, en sumarið áður lék hann mikið á Litla-vellinum á Korpunni.   „Golfið átti bara að vera svona „hobbý“ með fótboltanum á sumrin og það var það fyrstu tvö árin. Veturi..


Meira



Ragnhildur Sigurðardóttir


úr GR er einhver mesta afrekskonan í íslensku golfi. Hún vann nánast allt sem hægt var að vinna á síðasta ári, varð Íslandsmeistari í höggleik, holukeppni, sveitakeppni með GR og stigameistari GSÍ. Um síðustu helgi sigraði hún í Icelandairmótinu í Leirunni, sem var þriðja mótið á KB bankamótaröðinni á þessu ári. Þetta var jafnframt  fyrs..


Meira



Alex Freyr Gunnarsson


er ungur kylfingur úr GKG sem hefur verið að gera það gott í golfinu í sumar, er í öðru sæti á KB-banka mótaröð unglinga og nýbakaður klúbbmeistari GKG í flokki 13 ára og yngri sem hann vann með miklum yfirburðum. Hvar fæddist hann? Alex Freyr fæddist þann 4. janúar í Þýskalandi árið 1993. Öll fjölskyldan spilar golf en hann á tvo bræð..


Meira



Birgir Már Vigfússon


kylfingur úr GR hafnaði í öðru sæti á Íslandsmótinu í höggleik sem fram fór á Urriðavelli síðustu helgina í júlí og vakti frammistaða hans athygli. Hann sigraði þá reynsluboltana Auðunn Einarsson og Úlfar Jónsson í bráðabana um silfrið. Hann kemur frá Hornafirði og hefur lært hárgreiðslu. Þá stefnir hann að því að komast inn í Lögregluskóla Ríkisi..


Meira



Ragna Björk Ólafsdóttir


er ein efnilegasta golfkona landsins. Hún afrekaði það að dögunum að verða tvöfaldur Íslandsmeistari í sveitakeppni með Golfklúbbnum Keili. Var í sigursveit stúlkna 18 ára og yngri í Vestmannaeyjum og síðan í kvennasveit GK sem vann í 1. deild kvenna á Hvaleyrarvelli. Þá var hún Íslandsmeistari í holukeppni 16-18 ára. Ragna Björk er 17 ára gö..


Meira



Guðni Fannar Carrico


hefur  vakið athygli fyrir vasklega framgöngu á golfvellinum í sumar. Hann hefur unnið tvö stigamót á KB banka unglingamótaröðinni og síðan gerði hann sér lítið fyrir og sigraði í Unglingaeinvíginu í Mosfellsbæ. Guðni Fanna er aðeins 13 ára gamall  og er í 8. bekk í Seljaskóla í Breiðholti. Hann á 10 ára gamla systur sem heitir Rakel Sar..


Meira



Andri Már Óskarsson


kylfingur úr Golfklúbbi Hellu hefur vakið athygli fyrir góðan árangur á golfmótum sumarsins. Hann er aðeins 15 ára og varð stigameistari GSÍ í flokki 14-15 ára og eins vann hann sinn flokk á Faldo mótinu á Korpunni og fer í lokamótið á Faldo mótinu á Celtic Manor vellinum í Wales í október. Foreldrar hans eru:  Óskar Pálsson og Katrín..


Meira



Hjörtur Brynjarsson


 vakti athygli fyrir góðan árangur á golfmótum í sumar. Hann er liðsmaður GSE og var í sveit klúbbsins sem náði óvænt þriðja sæti í Sveitakeppni GSÍ á Hólmsvelli í sumar. Hjörtur, sem er 21 árs, er sonur Brynjars Harðarsonar fasteignasala og fyrrverandi handboltakempu og Ragnhildar Ragnarsdóttur. Hann fæddist í Svíþjóð, en hefur búið Ha..


Meira



Ingunn Gunnarsdóttir


er efnilegur kylfingur úr GKG og setti m.a. nýtt vallarmet af bláum teigum á Vífilsstaðavelli í sumar – lék á 72 höggum, eða 2 höggum yfir pari. Hún varð Íslandsmeistari í holukeppni stúlkna 13 ára og yngri og stigameistari sama ár, en það var fyrir nokkrum árum. Þá hefur hún  nokkrum sinnum verið klúbbmeistari GKG í stúlknaflokki. Hún ..


Meira



Bjarki Pétursson


er ungur og efnilegur kylfingur úr Golfklúbbi Borgarness. Hann var yngsti kylfingurinn sem fór holu í höggi í sumar, aðeins 11 ára gamall. Hann er fæddur 2. desember 1994 og er í 7. bekk í Grunnskóla Borgarness. Foreldrar hans eru  Pétur Sverrisson og Fjóla Pétursdóttir. Þau vinna bæði hjá Límtré Vírnet í Borgarnesi. Hann á tvær systur, ..


Meira



Örn Ævar Hjartarson


varð Íslandsmeistari í holukeppni á Grafarholtinu í fyrsta sinn í sumar. Hann varð Íslandsmeistari í höggleik 2001 og kylfingur ársins sama ár.  Eftirminnilegasti árangur hans er líklega vallarmetið á St Andrews, (New Course), 1998 er  hann tók þátt í St. Andrews Links Throphy.  Hann lék völlinn á 60 höggum, eða 11 höggum undir pa..


Meira



Sigurþór Jónsson


er afrekskylfingur úr golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Hann hefur unnið í versluninni Herra Hafnarfjörður undanfarin sex ár, en hættir þar um áramótin  og fer að vinna í golfversluninni Nevada Bob. Hann er einhleypur.  „Ég byrjaði að fikta við golfið þegar ég var 11 ára og margsuðaði í frænda mínum (Guðmundi Friðrik) að taka mig n..


Meira



Davíð Már Vilhjálmsson


er kylfingur úr GKj og var m.a. í sveit Kjalar sem hafnaði í 7. sæti á Evrópumótinu í Grikklandi. Þar lék hann best þremenninganna í sveitinni, sem var með forystu eftir fyrsta keppnisdag. Hann var Íslandsmeistari með sveit GKj 2005 og 2006. Davíð er  mikill tónlistar aðdáandi og spila á trommur í hljómsveitinni Red Motor Dog. Foreldrar ..


Meira



Snorri Páll Ólafsson


er ungur og efnilegur kylfingur úr GR. Hann er 17 ára og byrjaði í golfi þegar hann var aðeins fjögurra ára gamall.  „Mamma var þá framkvæmdastjóri hjá GR og tók mig alltaf með sér í vinnuna og ég lék mér á gamla æfingasvæðinu, svo var pabbi líka oft að spila og ég fékk stundum að fljóta með. Gekk svo í GR þegar ég var sex ára ga..


Meira



Sigurbjörn Þorgeirsson


er kylfingur frá Ólafsfirði sem varð m.a. Íslandsmeistari 35 ára og eldir á Akureyri síðasta sumar.  Hann er með 2.2 í forgjöf og  byrjaði að æfa golf  þegar hann var smá strákur á Akureyri. „Ég er 35 ára, fæddur og uppalinn á Akureyri og bjó þar til 25 ára aldurs.  Þá flutti ég til Reykjavíkur/Kópavogs og bjó þar í ..


Meira



Ómar Halldórsson


er kylfingur úr Golfklúbbi Akureyrar. Hann hefur afrekað það sem enginn annar Íslendingur hefur náð, orðið Evrópumeistari 17- 18 ára árið 1997. Hann varð einnig þar með fyrstu Íslendinga til að vinna alþjóðlegan titil í golfi. Hann var kjörinn íþróttamaður Akureyrar 1997. Ómar er fæddur á Akureyri 1979 og uppalin á Jaðarsvelli meira og minna...


Meira



Gunnlaugur Hafsteinn Elsuson


er kylfingur úr Golfklúbbi Sauðárkróks og er talinn einn högglengsti kylfingur landsins. Hann sigraði m.a. í drævkeppni sem Kylfingur.is og Sporthúsið stóðu að í Sporthúsinu í  mars í fyrra. Hann hefur verið golfleiðbeinandi hjá GSS undanfarin ár og náð þar athyglisverðum árangri. Gunnlaugur Hafsteinn er íþróttafræðingur að mennt og er..


Meira



Úlfar Jónsson


er einn besti kylfingur sem Ísland hefur alið. Hann var meðal annars kjörinn kylfingur síðustu aldar af Golfsambandi Íslands. Hann hefur sex sinnum orðið Íslandsmeistari, eða jafn oft og Björgvin Þorsteinsson og er það met. Þá var hann Norðurlandameistari árið 1992 bæði í einstaklings og liðakeppni.  Hann er yngsti meistari GK frá upphafi, að..


Meira



Ríkharður Hrafnkelsson


hefur verið formaður í golfklúbbi lengur en nokkur annar  Íslendingur. Hann er fyrsti formaður Mosta í Stykkishólmi 1984 og hefur verið það allar götur síðan, eða samfellt í 23 ár. Hann er gamall landsliðsmaður í körfubolta, en er nú með ódrepandi golfdellu og með 5,8 í forgjöf. Okkur lék forvitni á að vita hver þessi maður er: „Ég..


Meira



Ólafur Þór Ágústsson


er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Hann hefur verið vallarstjóri hjá Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði frá því 1993. Hann var fyrstur Íslendinga til að mennta sig í umhirðu golfvalla, var í Elmwood College í Skotlandi 1992 til 1993. Hann er með 2,4 í forgjöf og var Íslandsmeistari með GK í sveitakeppni GSÍ 2000. Hvenær byrjaðir þú í golfi ..


Meira



María Guðnadóttir


er mikil íþróttakona frá Stykkishólmi. Hún er marfaldur Íslandsmeistari í hástökki og spjótkasti og keppti þá fyrir Snæfell og HSH. Einnig var hún í nokkur ár í landsliði Íslands í þessum greinum og spilaði körfubolta með Þór Akureyri og KR og vann nokkra Íslandsmeistara-og bikartitla. Hún snéri sér að golfíþróttinni þegar hún var um þrítugt og er..


Meira



Alfreð Brynjar Kristinsson


gerði sér lítið fyrir og sigraði í fyrsta stigamóti GSÍ 2007, Kaupþings mótaröðinni, sem fram fór á Akranesi helgina 19. - 20. maí. Þetta var jafnframt fyrsti sigur  hans á stigamót, en hann hafði aldrei áður komist á verðlaunapall á mótaröðinni. Hann byrjaði í golfi 12 ára gamall og hefur verið við nám í Bandaríkjunum tvö síðustu árin o..


Meira



Guðmundur Ágúst Kristjánsson


er  14 ára gamall kylfingur úr GR og þátt fyrir ungan aldur hefur hann vakið mikla athygli fyrir frábæran árangur í golfi. Hann er með aðeins 3 í forgjöf og er margfaldur Íslandsmeistari í flokki unglinga. Hann hefur einnig verið að keppa í fullorðinsflokki, m.a. á Kaupþingsmótaröðinni. Guðmundur Ágúst býr í Seljahverfinu og e..


Meira



Rúnar Arnórsson


kylfingur úr GK hefur vakið mikla athygli fyrir góðan árangur í fyrstu mótum sumarsins á Kaupþingsmótaröð unglinga. Hann hefur orðið klúbbmeistari síðustu þrjú árin í sínum aldursflokki og  hefur unnið fjögur stigamót. Nýlega vann hann 4. stigamótið og lék tvo hringi á Hvaleyrarvelli á 4 höggum undir pari (70 og 68 höggum). Rúnar er nýlega or..


Meira



Ólafur Hreinn Jóhannesson


er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Óli Jó eins og hann er oft kallaður er nýkrýndur Norðurlandameistari í golfi og starfar hann sem kennari Golfklúbbs Suðurnesja.Ólafur er giftur Bryndísi Evu Jónsdóttur innanhússarkitekt og búa þau í Hafnarfirðinum ásamt heimilishundinum Vini.   Ólafur kláraði grunnskólann og hélt..


Meira



Ólafía Þórunn Kristinsdóttir


Ólafía Þórunn Kristinsdóttir varð nú um helgina Íslandsmeistari í telpnaflokki 14-15 ára. Hún spilaði vel í mótinu og þá sérstaklega á fyrsta og þriðja hring sem hún spilaði á 74 og 73 höggum þar sem hún lækkaði forgjöf sína um níu högg og er komin með 4,9. Hún er kylfingur vikunnar á Kylfingur.is. Ólafía er fædd 15. október 19..


Meira



Hallgrímur Júlíusson


Kylfingur vikunnar að þessu sinni er Hallgrímur Júlíusson og er hann fæddur þann 10. september 1994. Pabbi hans heitir Júlíus Hallgrímsson og mamma hans heitir Kristjana Ingólfsdóttir og svo á hann eina litla sæta systur sem heitir Ásta Björt. Hann hefur ekki langt að sækja golfhæfileika sína, þar sem hann er..


Meira



Jóhann Kristján Hjaltason


er kylfingur vikunnar að þessu sinni, en hann er GR-ingur og starfar nú sem  golfleiðbeinandi hjá Pro Golf. Hann á unnustu sem heitir Sandra Halldórsdóttir og saman eiga þau mánaðargamlan strák sem heitir  Hjalti.  Foreldrar  Jóhanns eru Hjalti Jóhansson tæknifræðingur og Guðbjörg Helga Bjarnadóttir hjúkrunarfræðingur. Áður en ..


Meira



Sunna Víðisdóttir


úr GR er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Hún er aðeins 13 ára og hefur náð ótrúlega skjótum árangri í golfinu. Hún byrjaði að æfa fyrir aðeins tveimur árum og er nú komin með 11,4 í forgjöf. Hún er ekki bara góð í golfi, heldur er hún afburða námsmaður og er einu ári á undan í skóla.  Sunna var í keppnisferð Nevada Bob á Valle del Est..


Meira



Hjörleifur G. Bergsteinsson


 úr GK er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Hann er einn efnilegasti kylfingur Keilis og varð í þriðja sæti á stigalista Kaupþingsmótaraðarinnar í flokki 14-15 ára pilta sl. sumar. Foreldrar hans eru Bergsteinn Hjörleifsson, formaður GK og Helga Kristín. Hann á tvö systkini, eldri bróður og yngri systur. Hjörleifur, eða B..


Meira



Berglind Björnsdóttir


kylfingur úr GR er ein af efnilegustu kylfingum landsins. Hún er stigameistari stúlkna 14-15 ára á Kaupþingsmótaröð unglinga 2007 og er í unglingalandsliðinu.  Berglind er fædd 29. september 1992 og býr í Staðahverfi við Korpúlfsstaðavöll. Hún er á fyrsta ári í MR,  á náttúrufræðibraut. Foreldrar hennar eru Eygló Grímsdóttir og Björn Hal..


Meira



Jódís Bóasdóttir


er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Hún  náði ágætum árangri á golfvellinum í sumar, varð Íslandsmeistari í holukeppni og varð í öðru sæti á stigalistanum í flokki 14-15 ára. Þá varð hún einnig klúbbmeistari í 14-15 ára aldursflokki stúlkna hjá klúbbi sínum Keili í Hafnarfirði. Jódís var valin í unglingalandsliðið í golfi á dögu..


Meira



Guðrún Brá Björgvinsdóttir


úr GK er ein efnilegasta golfkona Íslands. Hún er aðeins 13 ára og hefur verið mjög sigursæl á unglingamótaröðinni undanfarin ár. Hún kemur úr mikilli golffjölskyldu. Faðir hennar er  Björgvin Sigurbergsson, marfaldur Íslandsmeistari og móðir hennar er Heiðrún Jóhannsdóttir. Hún á einn bróður sem heitir Helgi Snær og er líka í golfi. Guðrún B..


Meira



Gunnar Hreiðarsson


er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Gunnar hefur verið tíður gestur á spjallsvæði Kylfings.is og því gaman að fá að vita meira um þennan mikla penna. Hver er svo maðurinn? "Ég er fæddur hér á landi 16. ágúst 1969, eða í miðju kafi Woodstock hátíðarinnar, hef ferðast víða um heim eða til 18 landa en aldrei komið til USA eða Vestmannaeyj..


Meira



Ástrós Arnarsdóttir


er 14 ára gömul golfkona úr GR. Hún er í 9. bekk í  Álftamýrarskóla. Móðir hennar  er Helga Lárusdóttir og vinnur í Iceband og faðir hennar er Arnar Már Ólafsson og er unglingalandsliðsþjálfari í golfi. Hann er einnig skólastjóri í IPGA-Golfkennaraskólans og er formaður IPGA. Þá á Ástrós eina yngri systur sem heitir Sólrún Arnarsdóttir o..


Meira



Davíð Viðarsson


kylfingur úr Golfklúbbi Suðurnesja er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Hann hefur tvisvar náð draumahöggi allra kylfinga, að fara holu í höggi. Davíð býr í Reykjanesbæ nokkrum húsum frá vini sinum Erni Ævari Hjartarsyni sem reynir fyrir sér sem atvinnumaður. Davíð er  fæddur 12. janúar 1979 í Keflavík. Foreldrar hans eru Viðar Oddgeirs..


Meira



Ívar Hauksson


er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Hann hefur verið búsettur á Spáni frá því 1996 og starfar sem golfkennari á Real Club Golf Campoamor. Ívar og eiginkona hans, Ana sem er spænsk, eiga eina dóttur sem heitir  Raquel og er 4 ára og síðan er annað barn á leiðinni. „Ég á einnig tvær stelpur á Íslandi sem heita Íris Tanja og Ornella og e..


Meira



Davíð Arthúr Friðriksson


er kylfingur vikunnar, fæddur 22.mars 1978. Hann er búsettur í Njarðvík en er uppalinn Grindvíkingur. Davíð starfar sem slökkviliðsmaður á Keflavíkurflugvelli en er einnig liðtækur smiður.  Kona hans heitir Dagmar Lóa og er Njarðvíkingur, þau eiga eina dóttur sem er 11 mánaða og heitir Heiðdís Birta. Helsta áhugamál utan golfsins er fótbolti ..


Meira



Guðni Oddur Jónsson


er kylfingur vikunnar og er 19 ára strákur úr Keflavík. Hann stundar nám við afreksmannadeild akademíunnar þar sem hann stundar sitt golf á morgnanna undir handleiðslu kennara. Guðni útskrifast svo næsta vor og hyggur á nám í Bandaríkjunum þar sem stefnt er á að fá golfstyrk samhliða náminu. Hann er í Golfklúbbi Suður..


Meira



Tinna Ósk Óskarsdóttir


er kylfingur vikunnar. Hún er 24 ára gömul og býr með kærasta sínum, honum Villa upp á Vatnsenda við Elliðavatn.Tinna stundar laganám við Háskólann í Reykjavík og er þar á 3. ári. Villi er menntaður tölvunarfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og starfar fyrir TM software, til að hafa aðeins meira að gera er hann í meistaranámi í project managemen..


Meira



Þorsteinn Hallgrímsson


er kylfingur vikunnar. Flestir golfáhugamenn kannast við Eyjamanninn Þorstein Hallgrímsson en hann hefur unnið til fjölmargra titla á ferlinum. Hann hefur oftar en ekki komið að lýsingum frá stórmótunum í golfi og heillað áhorfendur með glettni og fróðleiksmolum. Þorsteinn býr Mosfellsbæ ásamt Ingu konunni sinni og börnunum sínum Kr..


Meira



Sturla Höskuldsson


er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Hann er  golfkennari, formaður og vallarstjóri hjá Golfklúbbi Fljótsdalshéraðs á Egilsstöðum og því nóg að gera hjá honum þessa dagana. Sturla hefur verið búsettur á Egilsstöðum ásamt heimasætunni undanfarin 3 ár en er Reykvíkingur í húð og hár og ólst upp í GR. Hann hefur starfað sem golfkennari síðan ár..


Meira



Birgir Guðjónsson


er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Hann var í toppbaráttunni á fyrsta móti sumarsins á Kaupþingsmótaröðinni sem fram fór á Strandarvelli á Hellu. Birgir var í lokahollinu síðari keppnisdaginn og hafnaði í 4.-8. sæti á samtals einu höggi undir pari. Birgir er 25 ára GR-ingur og er uppalinn í Grafarvoginum, en býr nú í Breiðholti ásamt unnu..


Meira



Ísak Jasonarson


úr GK er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Hann sigraði í flokki 13 - 14 ára drengja á fyrsta mótinu á Kaupþingsmótaröð unglinga á Hvaleyrarvelli um síðustu  helgi. Hann verður 13 ára 11. júlí nk. og er í Setbergsskóla í Hafnarfirði. Móðir hans heitir Helena Björk og pabbi hans Jason Kristinn. "Ég á þrjár s..


Meira



Sigurður Ingvi Rögnvaldsson


kylfingur úr Golfklúbbnum Hamri á Dalvík er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Hann er aðeins 15 ára og var klúbbmeistari GHD í fyrra í fullorðinsflokki. Hann varð fyrsti Íslandsmeistari klúbbsins fyrir tveimur árum er sigraði í flokki 13 ára og yngri. Sigurður Ingvi er fæddur 31. janúar 1993 og býr á Dalvík og var að ljúka 9. bekk í grunnskó..


Meira



Arndís Eva Finnsdóttir


Arndís Eva Finnsdóttir er kylfingur vikunnar að þessu sinni en hún kemur úr golfklúbbnum Keili. Arndís er 15 ára gömul og hefur ekki búið lengi á Íslandi því hún flutti nýlega aftur heim til Íslands frá Svíþjóð eftir 12 ára fjarveru þar sem foreldrar hennar voru í námi. Foreldrar hennar eru vel menntaðir en mamma hennar er læknir og pabbi hennar e..


Meira



Oddur Óli Jónasson


Oddur Óli Jónasson er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Hann er 21 árs Reykvíkingur og leikur golf í golfklúbbnum NK. Hann útskrifaðist sem stúdent frá Menntaskólanum við Sund vorið 2007 og stefnir á háskólanám erlendis í framtíðinni. Í dag starfar hann sem vallarstarfsmaður hjá Nesklúbbnum og hefur gert það síðan 2005, en starfið hefur veitt hon..


Meira



Guðrún Pétursdóttir


Guðrún Pétursdóttir er kylfingur vikunnar. Hún er kylfingur úr GR og er 13 ára gömul. Hún hefur vakið athygli fyrir vasklega framgöngu í golfinu í sumar og verið í toppbaráttunni í sínum aldursflokki á Kaupþingsmótaröð unglinga. Hún fékk nándarverðlaun á Íslandsmótinu í höggleik í Vestmannaeyjum á 17. holu en hún var aðeins tveimur metrum frá..


Meira



Sigurður Jónsson


Sigurður Jónsson úr Golfklúbbi Suðurnesja er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Hann átti frábæran hring á innanfélagsmóti GS í Leirunni á dögunum, spilaði á 64 höggum og er kominn með 0,6 í forgjöf. Sigurður er nemandi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja, býr í Sandgerði ásamt foreldrum og 3 systkynum. Á sumrin vinnur hann á golfvellinum í Leirunni..


Meira



Guðjón Ingi Kristjánsson


 úr GKG er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Hann er með efnilegir kylfingum landsins og sigraði m.a. í Unglingaeinvíginu í Mosfellsbæ í lok ágúst. Hann er einnig klúbbmeistari GKG í flokki 17-18 ára og varð í 3. sæti í stigakeppni Kaupþingsmótaraðar unglinga í ár. Guðjón Ingi, sem er með 2,5 í forgjöf, er 18 ára gamall o..


Meira



Páll Theodórsson


úr Golfklúbbnum Kili í Mosfellsbæ er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Páll hefur vakið mikla athygli í sumar fyrir vasklega framgöngu á golfvellinum þó ungur sé, aðeins 16 ára gamall. Hann hafnaði í 3. sæti á lokamóti Kauþingsmótaraðarinnar 2008 á Urriðavelli eftir að hafa verið jafn í efsta sæti fyrir lokahringinn. Páll  er á fyrsta ári..


Meira



Björgvin Sigmundsson


úr Golfklúbbi Suðurnesja er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Hann lék best á Opnu haustmóti GS á Hólmsvelli í Leiru um síðustu helgi, kom inn á 72 höggum eða pari vallar. Besti hringur hans á vellinum er hins vegar 67 högg, eða 5 högg undir pari. Hann er með 2,1 í forgjöf. Björgvin býr á Stúdentagörðunum á veturna en á sumrin flytur hann y..


Meira



Anna Sólveig Snorradóttir


er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Hún er efnilegur kylfingur úr GK. Hún er klúbbmeistari Keilis í flokki 13 ára og yngri 2008 og þá hafnaði hún í þriðja sæti í sínum flokki á Kaupþingsmótaröð unglinga í ár. Hún er fædd árið 1995 og býr í Hafnarfirði með foreldrum sínum og Koli hundinum sínum og er í Hvaleyrarskóla.  Með golfinu æfir hún e..


Meira



Sigursteinn Ingvar Rúnarsson


er kylfingur vikunnar á þessu sinni. Hann vann það afrek að verða klúbbmeistari La Cala Resort á Spáni í síðasta mánuði. Sigursteinn Ingvar er  fyrrverandi bankastarfsmaður með viðskiptafræðimenntun. Hann hætti í 9-5 vinnunni til að eltast við drauminn um að verða atvinnumaður í golfi. „Ég, kona og barn fluttum út til að gefa þessu 110%..


Meira



Rafn Stefán Rafnsson


er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Hann starfar sem verslunarstjóri í golfversluninni Nevada Bob og er klúbbmeistari GO 2008. Hann segir að nú sé að fara í hönd mikill annatími í versluninni, enda vilji allir kylfingar frá golfdót í jólagjöf. Hvenær byrjaðir þú í golfi og hvers vegna? „Byrjaði að leika mér í golfi þegar ég var 13-..


Meira



Ágúst Jensson


Kylfingur vikunnar að þessu sinni er Ágúst Jensson, vallarstjóri á Korpúlfsstaðavelli.  Ágúst hefur starfað í golfgeiranum í mörg ár þrátt fyrir ungan aldur, fyrst í Stykkishólmi en svo hjá Golfklúbbi Reykjavíkur.  Hann er menntaður golfvallafræðingur og situr í stjórn Samtaka íþrótta- og golfvallastarfsmanna á Íslandi. Kylfngur.i..


Meira



Guðni Hafsteinsson


133 --!-- --!-- --!-- Content --> Guðni Hafsteinsson er kylfingur vikunnar.  Guðni er Keflvíkingur í húð og hár .  Stundaði knattspyrnu og körfuknattleik á sínum yngri árum en hefur nú alfarið snúið sér að golfinu. Hann er á sínu öðru ári sem stjórnarmaður í Golfklúbbi Reykjavíkur en sat þar á undan í þrjú ár í forgjafar- og ..


Meira



Björn Víglundsson


--!-- 134 --!-- --!-- --!-- Content --strong>Hvenær byrjaðir þú í golfi og hvers vegna? 1993. Var í skóla á Flórída og þar er ekki hægt að spila ekki golf. Hefur þú verið í öðrum íþróttum? Já, handbolta og soldið í fótbolta. Og svo einu sinni á ári í keilu. Helstu afrek í golfinu? Ég hef margoft næstum náð góðum árangri. En ég ..


Meira



Sigurður Helgi Hlöðversson


--!-- 0 --!-- --!-- --!-- Content --strong>Hvenær byrjaðir þú í golfi og hvers vegna? Kom syni mínum á sumarnámskeið og ákvað að prófa þetta með honum líka. Ég er í dag helsjúkur golfari en sonur minn er nánast hættur! Hefur þú verið í öðrum íþróttum? Boxi, Karate, Tai KwonDo og….nei djók. Skíði og fótbolti. Helstu af..


Meira



Aðalsteinn Ingvarsson


--!-- 0 --!-- --!-- --!-- Content --strong>Hvenær byrjaðir þú í golfi og hvers vegna?   1987, byrjaði að fikta með pabba. Hefur þú verið í öðrum íþróttum?   Handbolta og hinu og þessu. Helstu afrek í golfinu?   Púttmeistari Sígí og einu sinni sígí meistari með forgjöf. Hver eru helstu markmiðin?   Að hækk..


Meira



Gunnar Már Sigurfinnsson


Hvenær byrjaðir þú í golfi og hvers vegna?   Byrjaði 10 ára í Eyjum.  Veit nú ekki alvega afhverju, en ætli heiðursmaðurinn Raggi Rakari eigi ekki aðalheiðurinn af því.  Byrjaði að draga fyrir hann og fór svo sjálfur að spila. Hefur þú verið í öðrum íþróttum?   Fótbolta, handbolta, skíði, sundi og síðan er það auðvitað ræ..


Meira



Sigurjón J. Sigurðsson


Sigurjón J. Sigurðsson, ritstjóri Bæjarins Besta og bb.is á Ísafirði er lunkinn kylfingur og stefnir hátt í golfíþróttinni. Hans markmið eru frábær og stefnan hjá honum í sumar er að fara vikuferð um Ísland og leika golf.     Hvenær byrjaðir þú í golfi og hvers vegna? Á níunda áratug síðustu aldar og hætti síðan. Byrjaði aft..


Meira



Grímur Kolbeinsson


Grímur Kolbeinsson, viðskiptastjóri hjá Prentsmiðjunni Odda til „hundrað“ ára er kylfingur vikunnar hjá okkur að þessu sinni. Hann ere inn af þessum litríku kylfingum þessa lands sem nýtur þess betur en flest annað að fara í golf. Grímur er þessi týpiski kylfingur sem dreymir um það að komast undir áttatíu högg á 18 holum en það er ei..


Meira



Ragnheiður Jónsdóttir


Ragnheiður Jónsdóttir er kylfingur vikunnar að þessu sinni en hún komst í fréttirnar hér á Kylfingi.is á dögunum þegar hún gerði sér lítið fyrir og fékk ótrúlegan örn af um 120 metra færi á 8. holu á Gufudalsvelli í Hveragerði. Hún er 41 árs lögfræðingur og er búsett í Hafnarfirði. Hún ólst upp á fremur pólitísku heimili og hefur tvívegis verið í ..


Meira



Einar Haukur Óskarsson


Kylfingur vikunnar að þessu sinni er Einar Haukur Óskarsson úr GOB en hann sigraði á þriðja stigamóti sumarsins á Íslensku mótaröðinni sem fram fór á Urriðavelli í lok júní. Þessi 27 ára kylfingur er fæddur og uppalinn á Sauðárkróki og er vallarstjóri hjá Golfklúbbi Bakkakots. Hann hefur starfað lengi á golfvelli, eða allt frá því að hann var 12 á..


Meira



Björn Malmquist


Björn Malmquist er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Hann starfar sem fréttamaður á Ríkisútvarpinu en var áður fréttaritari í Bandaríkjunum. Hann er giftur Kristínu Briem, lektor í læknadeild HÍ og eiga saman tvö börn, þau Finn Helga og Eddu Katrínu. Hann hefur verið í golfi undanfarin ár og hefur m.a. ritað greinar um golf í blaðinu Golf á Íslan..


Meira



Ólafur Sverrir Jakobsson


Ólafur Sverrir Jakobsson er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Hann er rekur sitt eigið fyrirtæki sem heitir Sérmerkt en það sérhæfir sig í merkingum, heildsölu á auglýsingavörum og golftengdum vörum ásamt því sem fyrirtækið rekur netverslunina Bolur.is. Hann mun útskrifast frá HR í desember með B.sc gráðu í Viðskiptafræði og er einhleypur og barn..


Meira