PGA | miðvikudagur 22. febrúar 2012 | 15:12
Munu veikindi trufla Woods?
Tiger Woods hefur verið að glíma við kvef og hálsbólgu undanfarna daga. Woods mætir Spánverjanum Gonzalo Fernandez-Castano í fyrstu umferð í Heimsmótinu í holukeppni sem hefst í dag. Woods tapaði í fyrstu umferð á síðasta ári fyrir Dananum Thomas Björn og verður athyglisvert að sjá hvernig fer núna hjá fyrrum besta kylfingi heims.
„Ég var með börnunum mínum alla vikuna. Um leið og þau koma með veikindi heim þá verða allir veikir,“ sagði Woods sem telur mikilvægt að byrja vel í holukeppni.
„Þetta er sprettur. Þú verður að byrjar vel. Ef þú lendir tveimur-þremur holum undir þá á maður sjaldan afturkvæmt. Það getur hvers sem er unnið, við höfum séð það í gegnum árin. Það er þessi óútreiknanlegi þáttur sem er svo spennandi fyrir okkur leikmenn og örugglega líka fyrir áhorfendur.“