Hleð inn spilara...


PGA | miðvikudagur 22. febrúar 2012 | 13:34

GolfTV: Upphitun fyrir heimsmótið í holukeppni


Heimsmótið í holukeppni hefst í dag og eru margir spenntir fyrir þessu skemmtilega móti. Allir bestu kylfingar heims, að Phil Mickelson undanskildum, eru með í mótinu í ár en 64 efstu kylfingarnir á heimslistanum er með keppnisrétt.

Tiger Woods, Luke Donald, Rory McIloy, Lee Westwoods og fleiri heimsþekktir kylfingar verða með í mótinu. Sumir kylfingar eru einfaldlega betri en aðrir í holukeppni og vilja margir meina að Donald sé sá besti í heimi um þessar mundir. Hann á titil að verja í mótinu í ár og varð auk þess í öðru sæti í Volvo holukeppnismótinu á Evrópumótaröðinni þar sem hann tapaði í úrslitaleik fyrir Ian Poulter.

Það er spennandi keppni framundan en mótið stendur yfir fram á sunnudag þegar sigurvegari verður krýndur.