PGA | miðvikudagur 22. febrúar 2012 | 07:30
Woods lætur orð Fernandez-Castano sem vind um eyru þjóta
Heimsmótið í holukeppni hefst í dag í Arizona í Bandaríkjunum. Í mótinu leika flestir af bestu kylfingum heims. Mörg augu verða á viðureign Tiger Woods gegn Spánverjanum Gonzalo Fernandez-Castano en þeir mætast í fyrstu umferð.
„Hann er líklega ekki í sínu besta formi og ég horfi á það þannig. Ef ég spila vel þá á ég góðan möguleika á að vinna hann. Það er hægt að vinna hann. Hann hefur unnið þetta mót þrisvar sinnum og hefur átt mjög góðu gengi að fagna í holukeppni,“ sagði Fernandez-Castano um andstæðing sinn.
Woods lét orð Fernandez-Castano ekki slá sig út af laginu. „Mér líður eins og hann, það er hægt að vinna hann líka. Ummæli hans hefðu kannski æst mig upp og hvatt mig þegar ég var yngri en það hefur elst af mér. Það eina sem skiptir máli er hvernig ég spila og hvernig framförin verður hjá mér,“ sagði Woods.
Mótið verður í beinni útsendingu á Skjár Golf og hefst útsending kl. 17:00 í dag. Sýnt verður beint frá öllum keppnisdögum en mótinu lýkur á sunnudag. Hér að neðan má sjá þá sem mætast í fyrstu umferð en keppendum er skipt upp í fjóra riðla.
Riðlar og leikir í fyrstu umferð:
Bobby Jones
(1) Luke Donald v (64) Ernie Els
(32) Jason Dufner v (33) Peter Hanson
(16) KJ Choi v (49) Kyle Stanley
(17) Brandt Snedeker v (48) Retief Goosen
(8) Adam Scott v (57) Robert Rock
(25) Bo Van Pelt v (40) Mark Wilson
(9) Dustin Johnson v (56) Jim Furyk
(24) Thomas Bjorn v (41) Francesco Molinari
Ben Hogan
(4) Martin Kaymer v (61) Greg Chalmers
(29) David Toms v (36) Rickie Fowler
(13) Matt Kuchar v (52) Jonathan Byrd
(20) Bubba Watson v (45) Ben Crane
(5) Steve Stricker v (60) Kevin Na
(28) Louis Oosthuizen v (37) Aaron Baddeley
(12) Graeme McDowell v (53) YE Yang
(21) Hunter Mahan v (44) Zach Johnson
Gary Player
(2) Rory McIlroy v (63) George Coetzee
(31) KT Kim v (34) Anders Hansen
(15) Sergio Garcia v (50) Miguel Angel Jimenez
(18) Keegan Bradley v (47) Geoff Ogilvy
(7) Jason Day v (58) Rafael Cabrera-Bello
(26) Simon Dyson v (39) John Senden
(10) Charl Schwartzel v (55) Gary Woodland
(23) Ian Poulter v (42) Bae Sang-moon
Sam Snead
(3) Lee Westwood v (62) Nicolas Colsaerts
(30) Robert Karlsson v (35) Fredrik Jacobson
(14) Nick Watney v (51) Darren Clarke
(19) Tiger Woods v (46) Gonzalo Fernandez-Castano
(6) Webb Simpson v (59) Matteo Manassero
(27) Alvaro Quiros v (38) Martin Laird
(11) Bill Haas v (54) Ryo Ishikawa
(22) Justin Rose v (43) Paul Lawrie
Heimsmótið í holukeppni í beinni útsendingu á Skjár Golf:
Miðvikudagur 22. febrúar kl. 17:00-23:00
Fimmtudagur 23. febrúar kl. 19:00-23:00
Föstudagur 24. febrúar kl. 19:00-23:00
Laugardagur 25. febrúar kl. 17:00-23:00
Sunnudagur 26. febrúar kl. 14:00-23:00