PGA | þriðjudagur 21. febrúar 2012 | 13:20

Bradley biðst afsökunar á hrákunum


Það fór í taugarnar á mörgum að horfa upp á bandaríska kylfinginn Keegan Bradley spýta munnvatni hvað eftir annað þegar hann var að undirbúa sig fyrir högg á Northern Trust Open mótinu á PGA-mótaröðinni um síðastliðna helgi.

Bradley hefur nú beðist afsökunar á þessum ósið sínum sem hann segir að sé orðinn vani. „Ég vil biðjast afsökunar á þessu. Þetta er vani, ég veit ekki af hverju ég geri þetta. Ég er að reyna að vinna bug á þessum óvana,“ skrifaði Bradley á twitter síðu sína.

Vonandi þurfa golfáhugamenn ekki að horfa upp á endalausar hrákur frá Bradley í framtíðinni en hann spýtti út úr sér hrákunum hvað eftir annað meðan hann undirbjó sig fyrir högg á lokaholunum í mótinu. Það er engin ástæða fyrir því hvers vegna kylfingar ættu að hrækja á golfvöllinn en til eru nokkur slæm dæmi þar sem kylfingar hafa látið hrákuna vaða á flötina og frægt er þegar Sergio Garcia spýtti duglega í golfholuna fyrir nokkrum árum.


Umdeild hráka hjá Sergio Garcia árið 2007.


Tiger Woods hrækti á flötina sem á auðvitað ekki að sjást á golfvellinum, hvað þá hjá fyrrum besta kylfingi heims.