PGA | mánudagur 20. febrúar 2012 | 16:41
Haas sér ekki eftir að hafa sleppt brúðkaupi vinar síns
Bandaríski kylfingurinn Bill Haas sleppti brúðkaupi vinar síns til þess að leika í Northern Trust Open en sér væntanlega ekki eftir þeirri ákvörðun þar sem hann fagnaði sínum fjórða sigri á PGA-mótaröðinni.
„Ég er viss um að ég á eftir að tala við hann fljótlega og vonandi var dagurinn hans enn betri en minn. Þetta var ansi sætur dagur fyrir okkur báða,“ sagði Haas sem setti niður 40 feta pútt á annarri holu í bráðabana til að tryggja sér sigurinn.
„Ég átti alls ekki von á því að setja niður svona langt pútt í þessari stöðu. Það var örlítil heppni í þessu. Mér var greinilega ætlað að vinna.“
Haas hafði betur gegn þeim Keegan Bradley og Phil Mickelson á annarri holu í bráðabana. Mickelson hrósar Haas fyrir sigurpúttið á 10. holu. „Bill átti mangað pútt. Við vissum allir að það yrði gríðarlega erfitt að fá fugl og maður spilar þessa holu varnarsinnað,“ sagði Mickelson.
„Ég var nokkuð viss um að hann myndi ekki setja þetta pútt niður. Ég hefði mátt vita að hann myndi gera það þar sem hann er frábær með pútternum og frábær kylfingur,“ sagði Bradley.
Haas er 29 ára gamall og varð tíu milljónum ríkari eftir sigur sinn í FedEx-bikarnum á síðustu leiktíð. Hann hefur nú unnið fjögur mót á PGA-mótaröðinni og þykir líklegur til afreka á árinu.