PGA | mánudagur 20. febrúar 2012 | 11:41

Donald mætir Els í fyrsta leik


Nú er ljóst hvaða kylfingar mætast í fyrstu umferð í Heimsmótinu í holukeppni sem hefst í Arizona, Bandaríkjunum á miðvikudag. Englendingurinn Luke Donald mun mæta Ernie Els í fyrsta leik en Donald á titil að verja í mótinu. Ljóst að um erfiða viðureign er að ræða fyrir Donald en Els má muna sinn fífil fegurri á heimslistanum og komst naumlega inn í mótið.

Aðrar athyglisverðar viðureignir er að Lee Westwood mætir Belganum Nicolas Colsaerts sem að mörgum þykir líklegur til að ná sæti í liði Evrópu í Ryder-bikarnum. Ef ekki verða fleiri breytingar þá mun Rory McIlroy mæta George Coetzee frá Suður-Afríku.

Spánverjarnir Sergio Garcia og Miguel Angel Jimenez lenda í því að þurfa að leika hvor gegn öðrum og líka Svíarnir Robert Karlsson og Fredric Jacobson. Tiger Woods mun leika gegn Spánverjanum Gonzalo Fernandez-Castano í fyrsta leik og mætir annað hvort Darren Clarke eða Nick Watney komist hann áfram.

Riðlar og leikir í fyrstu umferð:
(1) Luke Donald v (64) Ernie Els
(32) Jason Dufner v (33) Peter Hanson
(16) KJ Choi v (49) Kyle Stanley
(17) Brandt Snedeker v (48) Retief Goosen

(8) Adam Scott v (57) Robert Rock
(25) Bo Van Pelt v (40) Mark Wilson
(9) Dustin Johnson v (56) Jim Furyk
(24) Thomas Bjorn v (41) Francesco Molinari

(4) Martin Kaymer v (61) Greg Chalmers
(29) David Toms v (36) Rickie Fowler
(13) Matt Kuchar v (52) Jonathan Byrd
(20) Bubba Watson v (45) Ben Crane

(5) Steve Stricker v (60) Kevin Na
(28) Louis Oosthuizen v (37) Aaron Baddeley
(12) Graeme McDowell v (53) YE Yang
(21) Hunter Mahan v (44) Zach Johnson

(2) Rory McIlroy v (63) George Coetzee
(31) KT Kim v (34) Anders Hansen
(15) Sergio Garcia v (50) Miguel Angel Jimenez
(18) Keegan Bradley v (47) Geoff Ogilvy

(7) Jason Day v (58) Rafael Cabrera-Bello
(26) Simon Dyson v (39) John Senden
(10) Charl Schwartzel v (55) Gary Woodland
(23) Ian Poulter v (42) Bae Sang-moon

(3) Lee Westwood v (62) Nicolas Colsaerts
(30) Robert Karlsson v (35) Fredrik Jacobson
(14) Nick Watney v (51) Darren Clarke
(19) Tiger Woods v (46) Gonzalo Fernandez-Castano

(6) Webb Simpson v (59) Matteo Manassero
(27) Alvaro Quiros v (38) Martin Laird
(11) Bill Haas v (54) Ryo Ishikawa
(22) Justin Rose v (43) Paul Lawrie