Hleð inn spilara...
PGA | mánudagur 20. febrúar 2012 | 08:55
GolfTV: Ótrúlegar lokaholur á Riviera
Þeir golfáhugamenn sem fylgdust með lokahringnum á Northern Trust Open mótinu á PGA-mótaröðinni í gærkvöldi fengu svo sannarlega eitthvað fyrir sinn snúð. Lokaholurnar í mótinu voru ótrúlega spennandi.
Phil Mickelson og Keegan Bradley náðu frábærum fugli á 18. holunni til að komast í bráðabana gegn Bill Haas en sá síðastnefndi fór að lokum með sigur af hólmi með frábærum fugli á annarri holu í bráðabana.
Hér að ofan má sjá samantekt frá lokahringnum á Riviera vellinum í Kaliforníu.
