PGA | mánudagur 20. febrúar 2012 | 00:37
Haas vann eftir bráðabana við Mickelson og Bradley
Bandaríski kylfingurinn Bill Haas stóð uppi sem sigurvegari í Northern Trust Open mótinu sem lauk í kvöld eftir æsispennandi bráðabana. Þeir Haas, Phil Mickelson og Keegan Bradley urðu allir jafnir í mótinu á samtals sjö höggum undir pari og fóru í bráðabana um sigurinn.
Mickelson tryggði sig inn í bráðabanann með dramatískum fugli á 18. holunni en hann púttaði löngu pútti utan af flöt beint í holu við gríðarlegan fögnuð áhorfenda. Bradley lék með Mickelson í lokaráshópnum og þurfti einnig á fugli að halda til að komast í bráðabanann. Hann setti einnig niður gott pútt fyrir fugli á hinni erfiðu 18. holu. Það var því ljóst að þessir þrír kylfingar myndu leika í bráðabana um sigurinn.
18. holan var leikinn aftur á fyrstu holu bráðabanans og þar fengu allir kylfingar par. Haas tryggði sér svo sigur með því að fá fugl á 10. holu sem var önnur hola bráðabanans og tryggði sér þar með sinn fjórða sigur á ferlinum á PGA-mótaröðinni.
Haas lék lokahringinn á 69 höggum eða á tveimur höggum undir pari á meðan þeir Mickelson og Bradley léku á pari. Fyrir sigurinn fær Haas um 140 milljónir króna í vasann.
Sergio Garcia átti besta hringinn dagsins en hann lék á 64 höggum eða sjö höggum undir pari og vann sig upp í 4. sæti eftir að hafa verið í 67. sæti fyrir lokahringinn. Magnaður endasprettur hjá Spánverjanum sem meðal annars fékk tvo erni á lokahringnum.
Lokastaðan í mótinu