PGA | sunnudagur 19. febrúar 2012 | 00:25

Mickelson og Bradley jafnir á toppnum


Bandarísku kylfingarnir Phil Mickelson og Keegan Bradley eru jafnir í efsta sæti á Northern Trust Open mótinu á PGA-mótaröðinni þegar aðeins lokahringurinn er eftir. Þeir eru samtals á sjö höggum undir pari eftir þrjá hringi.

Bradley lék á 66 höggum í dag eða fimm höggum undir pari og náði þar með að jafna við Mickelson sem lék á 70 höggum eða einu höggi undir pari. Leikið er á hinum erfiða Riviera golfvelli í Kaliforníu.

Bryce Molder, Jonathan Byrd og Pat Perez koma jafnir í þriðja sæti aðeins höggi á eftir þeim Mickelson og Bradley. Aaron Baddeley frá Ástralíu, sem á titil að verja í mótinu, lék á 66 höggum í gær og náði að lyfta sér upp í 6. sæti sem hann deilir með Dustin Johnson og Bill Haas.

Ljóst er að talsverð spenna verður á lokahringnum enda margir kylfingar sem geta staðið uppi sem sigurvegarar. Englendingurinn Luke Donald náði ekki að blanda sér í toppbaráttuna en hann lék þriðja hringinn á 71 höggi eða á pari. Hann er samtals á pari í mótinu í 26. sæti. Það kæmi þó fáum á óvart ef hún tækist að ljúka mótinu á meðal þeirra tíu efstu eins og hann gerði svo oft á síðustu leiktíð.

Staðan í mótinu