PGA | laugardagur 18. febrúar 2012 | 19:41
Kuchar stunginn af býflugu
Matt Kuchar lenti í óheppilegu atviki á öðrum hring sínum á Northern Trust Open mótinu sem fram fer á PGA-mótaröðinni. Kuchar var stunginn í handlegginn af býflugu á 6. holu þegar hann var að undirbúa sig fyrir pútt fyrir fugli.
„Ég hef ekki verið stunginn af býflugu í 20 ár og var hættur að vera hræddur við þessi dýr. Þetta var mjög sársaukafullt,“ sagði Kuchar sem lék annan hringinn á 69 höggum og var tveimur höggum á eftir Phil Mickelson þegar mótið var hálfnað.
„Ég var ekki alveg viss um hvað myndi gerast. Mér leið eins og að höndin á mér væri á báli en ég hélt áfram að spila. Sem betur fer þá fór allt vel,“ sagði Kuchar en læknar mótaraðarinnar fylgdu honum eftir þar sem viðbrögð einstaklinga við stungu býflugna geta verið æði misjöfn. Kuchar náði hins vegar að ljúka hringnum með glæsibrag og á góðan möguleika á sigri í mótinu.