Hleð inn spilara...


PGA | föstudagur 17. febrúar 2012 | 07:43

Mickelson áfram í stuði - Efstur eftir fyrsta hring


Phil Mickelson er greinilega í fantaformi um þessar mundir og hefur tekið forystuna í Northern Trust Open mótinu sem fram fer í Kaliforníu á PGA-mótaröðinni. Mickelson lék besta allra á fyrsta hring þegar hann kom í hús á 66 höggum eða fimm höggum undir pari.

Mickelson er einu höggi á undan þeim J.B. Holmes og Hunter Mahan sem koma jafnir í öðru sæti. Mickelson fékk fugl á 18. holunni til að ná efsta sætinu en hann fékk sex fugla á hringnum og einn skolla. Hann heldur áfram góðu gengi sínu en Mickelson sigraði eftirminnilega á Pebble Beach National mótinu um síðastliðna helgi.

Sergio Garcia byrjar mótið ágætlega en hann er í toppbaráttunni eftir að hafa leikið á 69 höggum á fyrsta hring. Luke Donald lék á 70 höggum en þetta er hans fyrsta mót á PGA-mótaröðinni í ár.

Staðan í mótinu eftir fyrsta hring