PGA | þriðjudagur 14. febrúar 2012 | 21:56

Woods leikur á Honda Classic í fyrsta sinn


Keppnisáætlun Tiger Woods á tímabilinu er að taka á sig mynd og nú hefur hann staðfest þátttöku sína í Honda Classic mótinu sem fram fer á PGA-mótaröðinni þann 1.-4. mars næstkomandi. Woods mun því leika í þremur mótum í röð á PGA-mótaröðinni en tvö mót á Heimsmótaröðinni fara fram vikunni fyrir og eftir mótið.

Woods hefur aldrei leikið í mótinu áður en hann býr í næsta nágreni við PGA National völlinn þar sem mótið fer fram. Keppnisáætlun Woods í ár er nokkuð frábrugðin þeirri sem hann hefur valið sér undanfarin ár og kannski merki um að hann kjósi nú að leika í fleiri mótum en hann hefur gert síðustu ár.

Ég hef heyrt frábæra hluti um Honda Classic mótið. Núna þegar ég bý á þessu svæði þá vil ég spila þar eins oft og ég get,“ sagði Woods. Hann varð í 15. sæti á Pebble Beach National mótinu um síðustu helgi eftir slæman lokahring. Woods verður næst með á Heimsmótinu í holukeppni sem fram fer í Arizona í næstu viku.