Hleð inn spilara...
PGA | mánudagur 13. febrúar 2012 | 12:58
GolfTV: Woods hundsvekktur - Púttin skelfileg
Tiger Woods var ekki upplitsdjarfur eftir lokahringinn á Pebble Beach National mótinu sem lauk í gær á PGA-mótaröðinni. Woods átti góðan möguleika á sigri fyrir lokahringinn en lék hringinn á 75 höggum og varð að lokum í 15. sæti í mótinu. Hann púttaði mjög illa á lokahringnum.
„Það tók á taugarnar að ég byrjaði ekki eins vel og ég hafði vonast eftir. Ég var einu höggi undir pari eftir sex holur en Phil var fimm undir pari. Það var byrjunin sem ég hafði vonast eftir en í staðinn þá fór ég í hina áttina. Ég missti fullt af púttum og ég sló ekki eins illa og skorið segir til um. Mér leið ekki vel yfir boltanum og fann ekki taktinn. Það var pirrandi,“ sagði Woods.
Nánar má heyra viðbrögð Woods í myndbandinu hér að ofan.
