Hleð inn spilara...


PGA | mánudagur 13. febrúar 2012 | 08:17

GolfTV: Mickelson í ham á lokahringnum


Í myndbandinu hér að ofan má sjá nokkur frábær tilþrif frá Phil Mickelson á lokahringnum í Pebble Beach National mótnu sem lauk í gær á PGA-mótaröðinni. Mickeson fór með sigur af hólmi í mótinu eftir magnaðan lokahring sem hann lék á 64 höggum eða átta höggum undir pari.

Mickelson fór illa með leikfélaga sinn, Tiger Woods, í gær og lék ellefu höggum betur í gær en helsti andstæðingur hans til margra ára. Líklega var þó Woods sjálfur sinn helsti óvinur á lokahringnum því hann gat ekki sett niður einföld parpútt þegar á reyndi og varð að lokum í 15. sæti í mótinu.


Phil Mickelson fór illa með Tiger Woods uppgjörri þeirra félaga á Pebble Beach vellinum í gær.