Hleð inn spilara...


PGA | mánudagur 13. febrúar 2012 | 07:01

Mickelson: „Woods dregur fram það besta í mér“


Phil Mickelson var í skýjunum eftir frábæran sigur sinn á Pebble Beach National mótinu sem lauk í gær. Mickelson lék frábært golf í gær og kom í hús á 64 höggum eða átta höggum undir pari og varð tveimur höggum betri en Charlie Wi sem varð annar.

Mickelson lék með Tiger Woods á lokahringnum og segir Mickelson að það hafi hjálpað honum. „Ég tel að Woods dragi fram það besta í mínum leik, en aðeins síðustu fimm ár. Áður fyrr þá átti ég ekki séns á móti honum,“ sagði Mickelson sem hefur sjaldan leikið betur en og hann gerði í gær.

Púttin eru frábær og með hverjum deginum þá verð ég betri og betri. Ég er mjög spenntur yfir þessu og ég hef mikla trú á sjálfum mér. Ég hafði trú á því að ég gæti sett niður þessu löngu pútt.“

Í myndbandinu hér að ofan má sjá viðbrögð Mickelson eftir mótið.


Phil Mickelson var í stuði í gær