PGA | sunnudagur 12. febrúar 2012 | 23:23
Mickelson sigraði á Pebble Beach - Pakkaði Woods saman
Bandaríski kylfingurinn Phil Mickelson fór með sigur af hólmi á Pebble Beach National mótinu sem lauk í kvöld á PGA-mótaröðinni í Kaliforníu. Mickelson lék samtals á 17 höggum undir pari í mótinu og varð tveimur höggum á undan Charlie Wi frá Suður-Kóreu. Ricky Barnes varð í þriðja sæti á 13 höggum undir pari.
Mickelson hefur sjaldan leikið eins vel og hann gerði á lokahringnum. Hann lék á 64 höggum í dag eða átta höggum undir pari. Hann púttaði frábærlega á lokahringnum og setti niður hvert glæsipúttið að fætur öðru. Það besta kom líklega á 12. holu þegar hann setti niður langt pútt fyrir pari eftir að Tiger Woods hafði á undan slegið niður úr glompu fyrir fugli. Ótrúleg frammistaða hjá Mickelson sem var ákaft fagnað í mótslok.
Woods var langt frá sínu besta í dag en hann lék á 75 höggum eða þremur höggum yfir pari. Hann var að pútta illa og ljóst er að hann á ennþá eitthvað í land. Woods kórónaði slæman dag með því að þrípútta á lokaflötinni eftir að hafa slegið inn á flöt í tveimur höggum og varð að sætta sig við par á þessari frábæru par-5 braut. Egóið hjá Woods er því líklega hressilega sært eftir að hafa tapað fyrir Mickelson með ellefu höggum í dag. Woods varð að lokum í 15. sæti í mótinu.
Fyrir sigurinn fær Mickelson um 140 milljónir króna í sinn hlut og er þetta hans 40. sigur á PGA-mótaröðinni. Þetta er einnig í fjórða sinn sem hann sigrar á Pebble Beach National mótinu.
Lokastaðan í mótinu