Hleð inn spilara...
PGA | sunnudagur 12. febrúar 2012 | 09:55
Woods: „Breytt sveifla en sama markmið“
Það munu vafalaust margir fylgjast með beinni útsendingu frá Pebble Beach National mótinu sem lýkur í kvöld á PGA-mótaröðinni. Tiger Woods er í toppbaráttunni og það skilar jafnan góðu sjónvarpsáhorfi.
Woods lék vel á þriðja hringnum í gær og ætlar sér sigur í mótinu. „Markmiðið er alltaf að vinna. Sveiflan er kannski breytt en markmiðið er það sama. Hugmyndin á bakvið sveiflubreytingarnar var að gera hana stöðugurri og það er að skila sér núna. Slæmu höggin eru ekki lengur eins slæm og því eru slæmu dagarnir ekki eins slæmir og áður. Ég veit hvað ég þarf að gera,“ sagði Woods að loknum þriðja hring.
Nánar er rætt við Woods og leikfélaga hans, Tony Romo, í myndbandinu hér að ofan.
