PGA | sunnudagur 12. febrúar 2012 | 00:08
Wi fjórum höggum á undan Woods fyrir lokahringinn
Charlie Wi frá Suður-Kóreu hefur góða forystu fyrir lokahringinn á Pebble Beach National mótinu sem fram fer á PGA-mótaröðinni. Wi er samtals á 15 höggum undir pari eftir þrjá hringi og er þremur höggum á undan Ken Duke sem er í öðru sæti.
Tiger Woods er í þriðja sæti á 11 höggum undir pari eftir að hafa leikið þriðja hringinn á 67 höggum eða fimm höggum undir pari. Woods lék fínt golf á þriðja hring og var að pútta vel. Hann á góðan möguleika á vinna sinn fyrsta sigur á PGA-mótaröðinni í yfir tvö ár og því má búast við ákveðnum Tiger Woods í dag.
Phil Mickelson, Kevin Na, Dustin Johnson, Brendon Todd og Hunter Mahan koma allir jafnir í 4. sæti á níu höggum undir pari og gætu blandað sér í baráttuna um sigurinn með góðum lokahring. Írinn Padraig Harrington var á tímabili meðal efstu kylfinga í mótinu en átti slæman lokasprett á þriðja hring sínum og féll niður í 9. sæti á samtals átta höggum yfir pari.
Leikið er á þremur völlum í mótinu, Spyglass Hill, Pebble Beach og Monterey Peninsula völlunum. Lokahringurinn fer fram á Pebble Beach vellinum en í mótinu leika áhugamenn ásamt atvinnukylfingum og eru margir þekktir leikarar, íþróttamenn eða tónlistarmenn meðal keppenda í mótinu að þessu sinni.
Staðan í mótinu

Leikarinn Bill Murray stal senunni á þriðja hring þegar hann mætti í golfdulargervi til fara.