Hleð inn spilara...
Fréttir | mánudagur 16. janúar 2012 | 11:55
Wagner sigraði á Sony Open - Þriðji sigurinn á ferlinum
Johnson Wagner fór með sigur af hólmi á Sony Open mótinu sem lauk í gær á Hawaii á PGA-mótaröðinni. Hann lék lokahringinn á 67 höggum eða þremur höggum undir pari og það reyndist nóg til að knýja fram tveggja högga sigur. Wagner lék samtals á 13 höggum undir pari og er þetta þriðji sigur hans á ferlinum.
„Ég var frekar taugaóstyrkur undir lokin. Ég var of stuttur í pútti fyrir fugli á lokaholunni en ég vissi að það væri í lagi. Ég er mjög spenntur fyrir þessu tímabili. Ég hef unnið mikið í mínum leik í jólafríinu og sagði við alla í kringum mig að ég myndi vinna snemma á tímabilinu. Það er góð tilfinning að hafa staðið við stóru orðin,“ sagði Wagner að móti loknu.
Wagner skartaði myndalegri mottu í mótinu og hann rakar hana væntanlega ekki af sér í bráð eftir góða byrjun á tímabilinu. Carl Petterson, Sean O‘Hair, Charles Howell III og Harrison Frazer urðu allir jafnir í öðru sæti í mótinu.
Lokastaðan í mótinu

Johnson Wagner með myndarlegum dömum á Hawaii eftir sigurinn í gær.