Fréttir | föstudagur 13. janúar 2012 | 14:38

Molar frá fyrsta hringnum á Sony Open


Hér að neðan er nokkrir fréttamolar af fyrsta hringum í Sony Open mótinu sem hófst í gær á Hawaii á PGA-mótaröðinni.

-Graham DeLaet hefur aldrei áður verið í forystu á PGA-mótaröðinni en hann er í forystu í mótinu eftir fyrsta hring á 63 höggum...
-K.J. Choi er jafn í öðru sæti eftir að hafa leikið á 65 höggum á fyrsta hring. Hann hefur leikið á pari eða betra skor á fyrsta hring í tíu af síðustu ellefu sinnum sem hann hefur tekið þátt í Sony Open mótinu...
-Steve Stricker hefur leikið 47 hringi í mótinu á ferlinum. Hann lék á 66 höggum eða -4 í gær og er þetta 42. hringurinn sem hann leikur á pari eða betra skor í þessu móti...
-Mark Wilson, sem á titil að verja í mótinu, lék síðustu 40 holurnar í mótinu á síðasta ári án þess að fá skolla. Hann fékk þrjá skolla á hringnum í gær...
-Tveir sextán ára kylfingar eru með í mótinu. Miguel Tabuena frá Filippseyjum lék á 71 höggi. John Oda úr Moanalua framhaldsskólanum lék á 73 höggum. Oda fékk þáttökurétt í gegnum mótshaldara en hann er búsettur á Hawaii...
-Þeir sem töpuðu ekki höggi á fyrsta hring voru þeir; Carl Pettersson, Webb Simpson, Colt Knost, Pat Perez, Kyle Stanley, Seung-yul Noh, Sean O’Hair og John Senden...
-Fyrsta holan á vellinum var erfiðasta hola dagsins en meðalskor hana var 0,257 högg yfir par. 9. holan var hins vegar auðveldust en skor á hana var 0,66 högg undir pari...
-Jhonattan Vegas átti lengsta teighöggið í gær en hann sló 354 yarda á 14. holu...
-Jonas Blixt átti lengsta pútt dagsins þegar hann setti niður pútt af um 18 metra færi á annarri flöt...

Mynd/golfsupport.nl: Steve Stricker á góðu gengi að fagna á PGA-mótaröðinni.