Fréttir | mánudagur 9. janúar 2012 | 13:55

Johnson stefnir á endurkomu á Torrey Pines


Bandaríski kylfingurinn Dustin Johnson ætlar að reyna að hefja keppnistímabilið 2012 í Farmers Insurance Open mótinu sem fram fer á Torrey Pines vellinum í Kaliforníu. Mótið er það fjórða í röðinni á PGA-mótaröðinni í ár og fer fram í lok janúar. Hann varð í þriðja sæti í mótinu á síðasta ári.

Þessi 27 ára gamli kylfingur þurfti að gangast undir aðgerð á hné í lok nóvember en þau meiðsli höfðu verið að stríða kappanum frá því í júlí. Ef marka má Twitter síðu kappans þá er hann æstur í að snúa aftur til leiks og ætlar sér greinilega stóra hluti á nýju ári.

Að vera ekki með um helgina fær mig til að sakna golfsins ennþá meira,“ skrifaði Johnson á Twitter. Hann er sem stendur í 7. sæti heimslistans og hefur þrisvar verið nálægt því að vinna risamót.