Hleð inn spilara...
Fréttir | mánudagur 9. janúar 2012 | 10:41
Stricker leiðir með fimm fyrir lokahringinn
Bandaríkjamaðurinn Steve Stricker er með fimm högga forystu fyrir lokahringinn á Tournamet of Champions sem fram fer á Hawaii á PGA-mótaröðinni. Aðeins sigurvegarar á PGA-mótaröðinni á síðustu leiktíð eru með þátttökurétt í mótinu.
Stricker er samtals á 19 höggum undir pari í mótinu eftir að hafa leikið þriðja hringinn á 69 höggum eða fjórum höggum undir pari. Hann er fimm höggum á undan þeim Jonathan Byrd, Webb Simpson og Martin Laird.
Stricker var frá vegna meiðsla í hálsi síðasta haust en virðist vera fullfrískur á ný. Hann hefur átti magnaðan endasprett í nótt þegar hann fékk fjóra fugla í röð á síðustu fjórum holunum og náði þar með góðri forystu.
Staðan í mótinu
