Hleð inn spilara...
Fréttir | sunnudagur 8. janúar 2012 | 13:07
Stricker magnaður á Hawaii
Steve Stricker var frábær á öðrum hring í Tournament of Champions sem fram fer á Hawaii á PGA-mótaröðinni. Stricker lék á 63 höggum í gær eða tíu höggum undir pari og er samtals á 15 höggum undir pari eftir tvo hringi. Hann hefur náð fimm högga forystu á Webb Simpson. Aðeins 28 kylfingar taka þátt í mótinu en þeir kylfingar sem sigruðu á PGA-mótaröðinni á síðasta ári eru með keppnisrétt á mótaröðinni.
„Þetta var sérstakur dagur. Þegar þú leikur á tíu höggum undir pari þá er eitthvað sérstakt að gerast. Ég gaf sjálfum mér mörg góð tækifæri, setti niður mörg pútt. Ég spilaði mjög jafnt golf og hélt mér frá vandræðum,“ sagði Stricker eftir hringinn.
Kevin Na lyfti sér upp í þriðja sætið eftir frábæran hring en hann lék á 64 höggum eða níu höggum undir pari. Hann lék fyrsta hringinn á pari og hefur því fært skotið sér upp töfluna.
Ernie Els á mótsmetið en hann lék á 31 höggi undir pari í mótinu árið 2003. Stricker segist ekki hugsa um metið. „Ég hef ekki hugsað um það og ég vil ekki setja tölu á hvar ég enda. Ég vil bara spila og tek það sem ég fæ. Ef mér líður vel þá spila ég sóknargolf og get þá tekið sénsinn á nokkrum holum hérna,“ sagði Stricker ennfremur.
Staðan í mótinu
