Hleð inn spilara...


Fréttir | sunnudagur 8. janúar 2012 | 08:28

GolfTV: Nýliðinn Bradley í nærmynd


Það eru fáir kylfingar sem hafa átt eins gott fyrsta ár á PGA-mótaröðinni líkt og hinn bandaríski Keegan Bradley. Hann vann HP Byron Nelson mótið og gerði sér svo lítið fyrir og vann PGA Meistaramótið, lokarisamót ársins, í ágúst. Bradley var í lok leiktíðar kjörinn nýliði ársins á mótaröðinni.

Í myndbandinu hér að ofan fáum við að sjá nærmynd af þessum frábæra kylfingi. Hann kemur úr mikilli golffjölskyldu og það sem meira er, Bradley er farinn að njóta mikilla vinsælda meðal golfáhugamanna fyrir skemmtilegan og hrífandi persónuleika. Margir eru þegar farnir að líkja honum við Phil Mickelson og Fred Couples sem urðu strax mjög vinsælir meðal golfáhugamanna.

Fari svo að Bradley haldi áfram að leika eins vel og hann gerði á síðasta ári þá gæti hér verið á ferðinni næsta stórstjarna golfsins í Bandaríkjunum.