Hleð inn spilara...
PGA | laugardagur 7. janúar 2012 | 12:23
Byrd efstur á Hawaii - Stricker í baráttunni
Jonathan Byrd er efstur eftir fyrsta hring í Tournament of Champions mótinu sem fram fer á Hawaii á PGA-mótaröðinni en mótið hófst í gær. Byrd lék fyrsta hringinn á 66 höggum eða sjö höggum undir pari og náði þar með eins höggs forystu á þá Michal Bradley, Steve Stricker, Martin Laird og Webb Simpson.
Aðeins þeir kylfingar sem unnu mót á PGA-mótaröðinni á síðustu leiktíð eru með keppnisrétt í mótinu. Byrd fékk meðal annars sex fugla í röð á fyrri níu holunum á hringnum í gær. Hann lék svo seinni níu holurnar á einu höggi undir pari.
„Fyrri níu holurnar voru skemmtilegar. Maður veit aldrei hvað gerist í fyrsta hring ársins. Ég sló ekkert sérstaklega vel á fyrstu holunni en náði að bjarga pari. Ég fann mig betur á næstu holu og svo fékk ég sex fugla í röð,“ sagði Byrd eftir hringinn.
Stricker byrjar árið ágætlega en hann hefur jafnað sig á meiðslum í hálsi en taug klemmdist sem varð til þess að hann missti mátt í annari hendi. Keegan Bradley, nýliði ársins á PGA-mótaröðinni, er einnig ofarlega á töflunni en hann lék á 69 höggum á fyrsta hring. Lucas Glover varð hins vegar að hætta við þátttöku í mótinu vegna meiðsla í hné.
Staðan í mótinu
