Hleð inn spilara...
Fréttir | þriðjudagur 8. nóvember 2011 | 17:58
GolfTV: Fimm bestu högg helgarinnar
Það voru frábær tilþrif sem golfáhugamenn fengu að sjá í stóru mótum helgarinnar. Í Kína var leikið í HSBC Champions mótinu þar sem margir af bestu kylfingum heims voru við keppni í lokamóti ársins á Heimsmótaröðinni.
Mark Calcavecchia, Martin Kaymer, Louis Oosthuizen, Adam Scott og Bo Van Pelt eiga fimm bestu högg helgarinnar að mati PGA-mótaraðarinnar. Kaymer á besta höggið fyrir fuglinn sem hann fékk úr glompunni á 7. holu á lokahringnum í mótinu í Kína. Það kom honum á bragðið en Kaymer fór að lokum með þriggja högga sigur í mótinu.

Mark Calcavecchia átti frábært högg í bandarísku öldungamótaröðinni um helgina. Hann sló í af löngu færi, beint í holu!