Fréttir | mánudagur 7. nóvember 2011 | 22:21

Holmes högglengstur á PGA-mótaröðinni


Bandaríski kylfingurinn J.B. Holmes er högglengsti kylfingurinn á PGA-mótaröðinni í ár. Hann slær að meðaltali 286,5 metra úr teighöggum sínum ef miðað er við frammistöðu hans á mótaröðinni í ár. Bubba Watson er annar en hann slær 283,4 metra að meðaltali.

Dustin Johnson er í þriðja sæti á listanum og högglengsti kylfingur síðasta árs, Robert Garrigus, er í fjórða sæti í ár. Athygli er þó vakin á því að Holmes lék í færri mótum í ár en efstu kylfingar á listanum en hann hefur ekkert leikið frá því ágúst vegna veikinda.

Það er skemmtileg staðreynd að tekjuhæsti kylfingurinn á PGA-mótaröðinni á þessari leiktíð, Englendingurinn Luke Donald, er í 147. sæti á listanum í ár. Hann slær 255,6 metra að meðaltali eða um 30 metrum styttra en Holmes. Eins og flestir vita þá skiptir högglengdin ekki öllu máli í golfíþróttinni eins og Donald sannaði í ár.

20 högglengstu kylfingarnir á PGA-mótaröðinni 2011:
Sæti - Kylfingur - Hringir - Meðalengd (Yards)
1. J.B. Holmes 57 318.4
2. Bubba Watson 85 314.9
3. Dustin Johnson 72 314.2
4. Robert Garrigus 83 313.4
5. Gary Woodland 93 310.5
6. Steven Bowditch 86 308.3
7. Scott Piercy 78 305.4
8. Jhonattan Vegas 84 304.9
9. Kyle Stanley 98 304.6
10. Will Strickler 51 304.1
11. Scott Stallings 84 303.7
12. Tag Ridings 87 303.3
13. Martin Laird 77 303.0
14. Jason Day 76 302.6
15. Josh Teater 104 302.3
16. Nick Watney 80 301.9
17. Harrison Frazar 58 301.8
18. Jim Herman 69 301.7
19. Angel Cabrera 50 301.6
20. Keegan Bradley 91 300.7