Fréttir | föstudagur 4. nóvember 2011 | 15:29

Jacobson reynir að ná stærsta sigri ferilsins


Þetta hefur verið frábær byrjun í mótinu. Ég hef verið að slá boltann vel og komið mér í mörg góð færi,“ sagði Svíinn Fredrik Jacobson sem er óvænt í efsta sæti þegar HSBC Champions mótið á Heimsmótaröðinni er hálfnað í Kína. Jacobson er á tólf höggum undir pari eftir góða spilamennsku í mótinu.

Hann gæti tekið forystuna á stigalista Evrópu í Ryder-bikarnum með sigri en Jacobson hefur verið að leika vel að undaförnu og varð í þriðja sæti í móti í Malasíu á PGA-mótaröðinni í síðustu viku.

Ég er farinn að fá keppnisrétt í stór mót þar sem ég fæ stig á stigalistann í Ryder-bikarnum. Það sem skiptir mestu máli er að verða betri og halda áfram að spila vel. Það er markmiðið. Ég hef átt í vandræðum með tímamismuninn síðan ég kom hingað. Það er erfitt að fara í gegnum svona tólf klukkustunda breytingu og ég hef aldrei verið góður í því. Það tók mig sex nætur áður en ég náði góðum svefni,“ sagði Jacobson.