Fréttir | föstudagur 4. nóvember 2011 | 08:10
Snedeker í aðgerð og frá í tvo mánuði
Bandaríkjamaðurinn Brandt Snedeker fór nýverið í aðgerð á mjöðm til að fá meina sinna bót sem hafa angrað hann að undanförnu. Hann verður í kjölfarið frá keppni í tvo mánuði vegna þessa. Snedeker fann fyrir meiðslunum í móti í Malasíu fyrir skömmu og fór í kjölfarið í aðgerð.
„Það eru vonbrigði að ná ekki að framfylgja þeim skuldbindingum sem ég var búinn að gera fyrir næstu mánuði. Þetta var nauðsynleg aðgerð og mun hjálpa mér við að ná fullum bara fyrir næstu leiktíð. Þetta mun hjálpa mér í framtíðinni,“ segir Snedeker sem sigraði í The Heritage mótinu í apríl en þar hafði hann betur gegn Luke Donald í bráðabana.
„Ég er einbeittur að ná lengra og reyna að vinna fleiri golfmót. Ég er sannfærður um að ég muni ná mér að fullu af þessum meiðslum.“