Hleð inn spilara...


Fréttir | sunnudagur 30. október 2011 | 15:45

Sex högga sigur Van Pelt í Malasíu


Bandaríski kylfingurinn Bo Van Pelt fagnaði sigri í CIMB Asia Pacific Classic mótinu sem lauk í morgun í Malasíu. Van Pelt vann mótið með sex högga mun eftir frábæran lokahring þar sem hann lék á 64 höggum eða sjö höggum undir pari. Alls lék Van Pelt á 23 höggum undir pari í mótinu.

Jeff Overton varð annar í mótinu á 17 höggum undir pari og höggi þar á eftir varð Fredrik Jacobson frá Svíþjóð í þriðja sæti. Ryan Palmer gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á 7. holu á lokahringnum en það er um 190 metra par-3 hola. Höggið glæsilega má sjá hér að ofan.

Ég lék mjög vel í dag, fékk ekki skolla og hélt mig við leikskipulagið. Ég átti möguleika á sigri tvisvar fyrr í ár en náði ekki að klára dæmið. Ég lærði af því og ég er gríðarlega sáttur með hvernig ég lék í dag,“ sagði Van Pelt eftir mótið.

Lokastaðan í mótinu