Hleð inn spilara...
Fréttir | föstudagur 28. október 2011 | 14:13
Overton í ham í Malasíu
Jeff Overton og Fredrik Jacobson eru efstir á CIMB Classic mótinu sem fram fer í Malasíu á PGA-mótaröðinni. Þeir eru samtals á 13 höggum undir pari eftir tvo hringi en Overton lék annan hringinn á 62 höggum eða níu höggum undir pari. Jacobson lék á 64 höggum eða sjö höggum undir pari.
Þeir eru einu höggi á undan Bo van Pelt sem er einn í þriðja sæti. Árangur Overton í mótinu er áhugaverður því honum var boðinn keppnisréttur í mótinu eftir að David Duval forfallaðist skömmu fyrir mótið. Hann náði ekki æfingahring fyrir mótið en lék engu að síður fyrsta hringinn á 67 höggum og bætti svo frábærum hring í dag.
„Ég skipti um kylfur fyrir tveimur vikum og golfið hjá mér hefur farið gríðarlega fram eftir það. Ég varð í sjötta sæti fyrstu vikuna eftir að ég fékk nýju kylfurnar í hendurnar. Ég hef verið í vandræðum á flötunum en setti nánast allt niður í dag. Hringurinn var ótrúlega skemmtilegur,“ sagði Overton eftir hringinn í dag.
Staðan í mótinu
