Fréttir | fimmtudagur 27. október 2011 | 13:48
Donald ósáttur við frestun á kosningu kylfings ársins
Besti kylfingur heims, Englendingurinn Luke Donald, er ekki sáttur með að kosningu á besta kylfingi PGA-mótaraðarinnar árið 2011, sem kylfingar á mótaröðinni kjósa sjálfir, hafi verið frestað. Upphaflega átti að senda út kjörseðla í upphafi þessarar viku en stjórn PGA-mótaraðarinnar ákvað að senda seðlana út eftir HSBC Champions mótið sem fram fer í Kína í næstu viku.
„Þetta er svolítið undarlegt og ég átta mig ekki á þessu. Ég hef það á tilfinningunni að þó ég tæki þátt í mótinu í Shanghai að þá myndi stjórnin bara finna annað mót til að bæta við,“ sagði Donald sem varð efstur á tekjulista PGA-mótaraðarinnar á tímabilinu.
Eftir frækinn sigur Donald í Disney mótinu um síðustu helgi töldu margir að Englendingurinn væri nokkuð öruggur með verðlaunin. Nú verður kosið eftir lokamótið á Heimsmótaröðinni. Stuðningsmenn Donald óttast að litið verði framhjá honum og Bandaríkjamaður kosinn sem sá besti. Donald verður ekki með í mótinu í Shanghai þar sem eiginkona hans á von á þeirra öðru barni.