Hleð inn spilara...


PGA | þriðjudagur 15. mars 2011 | 11:43

GolfTV: Villegas æfir eins og brjálæðingur


Líklega er enginn kylfingur á PGA-mótaröðinni í jafngóðu formi og hinn kólumbíski Camilo Villegas. Hann stundar líkamsrækt marga tíma á dag ásamt því að æfa golfíþróttina af kappi. Að auki þykir honum fátt skemmtilegra en að skella sér í hjólreiðar til að losna undan daglegu áreiti.

Fyrirmynd Villegas í golfíþróttinni er Gary Player frá Suður-Afríku sem hafði á sínum tíma mikil áhrif á viðhorf kylfinga til líkamsræktar. Villegas segir sjálfur að í dag að ásókn hans í að stunda líkamsrækt sé orðin lífstíll sem hann vilji ekki breyta.

Í myndbandinu hér að ofan má sjá hvernig Villegas ber sig að í ræktinni en eins og sjá er hann lítið fyrir að spara sig. Villegas á að baki þrjá sigra á PGA-mótaröðinni.