Fréttir | fimmtudagur 30. júlí 2009 | 22:25
Lowery á miklu skriði á Buick Open - Tiger í vandræðum

Steve Lowery sló vart feilhögg á fyrsta hring Buick Open á Warwick Hills þar sem hann lék á 63 höggum, níu undir pari. Hann hóf leik með miklum látum þar sem hann var á átta höggum undir pari eftir fyrri tíu og er með eins höggs forskot á Ástralann John Senden.
Þar á eftir er þéttur pakki kylfinga, en athygli vekur að Tiger Woods, besti kylfingur heims, er einungis á einu höggi undir pari og í sæti 95-115. Hann átti í erfiðleikum á flötunum í dag og skemmdu púttin mikið fyrir honum og verður hann nú aldeilis að snúa til baka á morgun ætli hann sér ekki að falla út í niðurskurði á öðru mótinu í röð, sem yrði í fyrsta sinn á ferli hans.
Staðan