Fréttir | þriðjudagur 28. júlí 2009 | 06:47

Green flaug upp FedEx-cup listann


Nathan Green fór upp um 99 sæti á FedEx-cup listanum með sigrinum á Opna kanadíska mótinu sem lauk í gær. hann fór úr 136. sæti í það 37.

Fáir kylfingar úr fremstu röð tóku þátt í mótinu og þeir fá sem það gerðu voru fæstir að gera mjög góða hluti. Þó var Anthony Kim að ná ágætisúrslitum. Hann hefur átt nokkuð erfitt uppdráttar lengst af í ár, en lauk keppni í þriðja sæti, sem er hans besta útkoma síðan hann lenti í öðru sæti í fyrsta móti ársins, Mercedes Benz meistaramótinu. Færist hann úr 38. sæti upp í það 25.

Steve Stricker er enn efstur á listanum, sjónarmun á undan Tiger Woods, en Kenny Perry er í þriðja sæti.

Mynd/golfsupport.nl - Green fagnar sínum fyrsta PGA-sigri