Fréttir | þriðjudagur 21. júlí 2009 | 18:12
Harrington setur stefnuna á PGA-meistaramótið

Íranum Padraig Harrington mistókst að sigra í þriðja skiptið í röð á Opna breska meistaramótinu sem fór fram á Turnberry um síðustu helgi. Hann hafði unnið síðustu tvö ár, en á nú enn einn titilinn að verja á næsta risamóti, PGA-meistaramótinu sem fer fram í næsta mánuði.
Harrington hefur ekki verið að gera góða hluti í ár, m.a. vegna þess að hann hefur verið að breyta sveiflunni hjá sér og hefur einnig átt við minniháttar úlnliðsmeiðsli að stríða, þannig að hann var ekki hátt skrifaður fyrir Opna breska, þar sem hann komst þó í gegnum niðurskurðinn. Harrington segist hins vegar vonast til þess að verða orðinn klár í slaginn þegar PGA-meistaramótið hefst.
„Það er lykilatriði hjá mér að verða tilbúinn fyrir PGA og það er eina takmarkið hjá mér í augnablikinu. Ég hef alla trú á að mitt spil eigi eftir að batna og styrkjast í aðdragandanum og það er það sem ég miða að.“
Golfskríbentar hafa velt því fyrir sér hvort Harrington hafi verið að stytta hjá sér sveifluna og tók gamli meistarinn Tom Watson m.a.s. undir það á dögunum þar sem hann taldi það ekki til bóta hjá Íranum knáa. Harrington vill sjálfur ekki kannast við að hafa stytt sveifluna.
„Ég hef aldrei reynt að stytta sveifluna hjá mér. Það er eitthvað sem þið fjölmiðlamenn hafið dregið upp til að greina sveifluna, en ég er þeirrar trúar að sveiflan hjá manni finni sína eigin eðlilegu lengd, líkt og við sjáum hjá Tom Watson. Það er afar almennilegt af honum að vilja hjálpa, en hann hefur fengið rangar upplýsingar eins og svo margir aðrir að því er virðist.“