LPGA | miðvikudagur 22. febrúar 2012 | 09:48

Wie hættir að borða glúten til að bæta sig


Michelle Wie virðist vera farin að missa þolinmæðina fyrir slöku gengi sínu á LPGA-mótaröðinni og hefur nú gripið til þeirra örþrifaráða að hætta að borða fæðu sem inniheldur glúten til að bæta frammistöðu sína á golfvellinum.

Besti tennisspilari heims, Novak Djokovic, gerði slíkt hið sama og tók í kjölfarið miklum framförum og er í dag efstur á heimslista karla í tennis. Wie vonast til að leika sama leik.

Ég heyrði sögu af því að hann hefði hætt að borða glúten og orðið sá besti. Það hreyfði við mér. Ég er með ofnæmi fyrir nánast öllu og á erfitt með að melta mat. Ég hugsaði með mér að ef ég sleppti að borða glúten þá liði mér kannski betur. Það eru þrjár vikur síðan ég byrjaði á þessu nýja mataræði og ég finn mikinn mun,“ sagði Wie.

Þess má geta að glúten er meðal annars að finna í hveiti, höfrum, spelt og bygg.