LPGA | sunnudagur 19. febrúar 2012 | 15:51

Tseng varði titilinn með einu höggi


Yani Tseng frá Taívan bar sigur úr býtum á LPGA Taíland mótinu sem lauk í dag á LPGA-mótaröðinni. Tseng lek á 66 höggum í dag og varð samtals á 19 höggum undir pari. Hún varð einu höggi á undan Ai Miyazato frá Japan sem leiddi fyrir lokahringinn.

Tseng, sem er efst á heimslista kvenna, hefur því tímabilið af krafti en hún vann fjöldann allan af golfmótum á síðasta ári, þ.a. tvö risamót. Ljóst er að Tseng, sem er aðeins 22 ára gömul, verður áfram í fremstu röð í ár.

Jiyai Shin var í þriðja sæti, tveimur höggum á eftir Tseng. Asískir kylfingar röðuðu sér í efstu sætin í mótinu. Stacy Lewis varð í 5. sæti á samtals tíu höggum undir pari. Ungstirnið Lexi Thomspon vann sig upp í 14. sæti með frábærum lokahring sem hún lék á 66 höggum. Michelle Wie varð í 38. sæti á samtals einu höggi yfir pari.

Lokastaðan í mótinu