LPGA | laugardagur 18. febrúar 2012 | 15:51

Miyazato einu höggi á undan Tseng


Ai Miyazato frá Japan er efst fyrir lokahringinn á LPGA Thailand mótinu á LPGA-mótaörðinni. Hún er samtals á 14 höggum undir pari eftir að hafa leikið þriðja hringinn á 65 höggum eða sjö höggum undir pari.

Miyazato er einu höggi á undan bestu golfkonu heims, Yani Tseng frá Taívan, en sú síðarnefnda á titil að verja í mótinu. Margir sterkir kylfingar eru nálægt toppnum því Kerrie Webb frá Ástralíu er í þriðja sæti ásamt Jiyai Shin á samtals tólf höggum undir pari.

Suzann Pettersen frá Noregi er í sjötta sæti á tíu höggum undir pari og gæti blandað sér í baráttuna á morgun.

Staðan í mótinu