LPGA | föstudagur 17. febrúar 2012 | 14:54

Webb fór holu í höggi og tók forystuna


Karrie Webb frá Ástralíu hefur tekið forystuna á LPGA Thailand mótinu á LPGA-mótaröðinni en hún er samtals á tíu höggum undir pari þegar hún hefur lokið 14 holum á öðrum hring sínum. Vegna rigningar verða að fresta keppni til morgun. Webb hefur tveggja högga forystu á þær Kiyai Shin og Amy Yang.

Webb gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á 12. holu líkt og Paula Creamer gerði í gær. „Þetta var mjög gott í dag. Ég átti frábært högg með 6-járni á 12. holu. Ég sá ekki boltann fara niður en áhorfendur fögnuðu þegar boltinn fór niður. Ég er vonsvikin með að hafa ekki fengið tækifæri á að klára hringinn því ég var að leika frábærlega,“ sagði Webb.

Flestir af bestu kylfingum LPGA-mótaraðarinnar leika í mótinu. Michelle Wie náði að vinna sig aftur inn í mótið með að leika annan hringinn á 68 höggum eða fjórum höggum undir pari. Hún er samtals á einu höggi undir pari í mótinu.

Staðan í mótinu