LPGA | fimmtudagur 16. febrúar 2012 | 15:23
Miyazato leiðir í Taílandi - Creamer fór holu í höggi
Ai Miyazato frá Japan er í efsta sæti eftir fyrsta hring í LPGA Thailand Open mótinu sem fram fer á LPGA-mótaröðinni. Hún lék á 67 höggum eða fimm höggum undir pari og er einu höggi á undan Na Yeo Choi, Se Ri Pak, Amy Yang, Önnu Nordqvist og Kerrie Webb.
Högg dagsins átti hin bandaríska Paula Creamer sem fór holu í höggi á 12. holu. Hún sló með 7-járni á þessari 130 metra löngu par-3 holu. Creamer lék hringinn í dag þó aðeins á pari og er fimm höggum á eftir Miyazato.
Staðan í mótinu