LPGA | sunnudagur 12. febrúar 2012 | 18:33
Korda vann í fyrsta sinn
Jessica Korda frá Bandaríkjunum fangaði sigri á Opna ástralska mótinu sem lauk í dag á LPGA-mótaröðinni. Þessi 18 ára stúlka hafði betur gegn fimm öðrum kylfingum í bráðabana um sigurinn en sex kylfingar luku leik á samtals þremur höggum undir pari.
Korda fór í bráðbana ásamt Stacy Lewis, Brittany Lincicome, Julieta Granada, Seo Hee-kyung og Ryo So-yeon. Korda var hins vegar hlutskörpust í bráðabananum og fagnaði sínum fyrsta sigri á LPGA-mótaröðinni.
„Ég vann mikið í mínum leik yfir hátíðarnar og það var þess virði. Ég hef vaxið úr grasi. Ég finn að allur sá tími sem ég hef eytt í að æfa mig er þess virði og ég mun halda því áfram,“ sagði hin stórefnilega Korda eftir lokahringinn.
Lokastaðan í mótinu