LPGA | laugardagur 11. febrúar 2012 | 14:02
Korda hefur eins höggs forystu í Ástralíu
Hin bandaríska Jessica Korda hefur eins höggs forystu á Opna ástralska kvennamótinu sem fram fer á Royal Melbourne vellinum á LPGA-mótaröðinni. Korda lék þriðja hringinn í mótinu á 73 höggum eða á pari en er aðeins höggi á undan Nikki Campbell frá Ástralíu sem átti besta hring dagsins þegar hún lék á 70 höggum eða þremur höggum undir pari.
Korda er samtals á fjórum höggum undir pari. Hún kemur úr mikilli íþróttafjölskyldu en faðir hennar, Tékkinn Petr Korda, vann Opna ástralska risamótið í tennis árið 1998. Korda verður 19 ára seinna í febrúarmánuði.
„Ég byrjaði hringinn vel en eftir að því sem að leið á þá varð þetta erfiðara. Ég endaði vel og er sátt með að leika á pari,“ sagði Korda eftir hringinn í morgun.
Búast má við mikilli samkeppni um sigurinn á morgun því margir sterkir kylfingar eru skammt á eftir. Besta golfkona heims, Yani Tseng frá Taívan, er aðeins tveimur höggum á eftir og gæti auðveldlega blandað sér í baráttuna á morgun.
Staðan í mótinu