Fréttir | sunnudagur 23. október 2011 | 12:10

Tíundi sigur ársins hjá Tseng kom á heimavelli


Besti kvenkylfingur heims, Yani Tseng frá Taívan, vann í morgun tíunda sigur sinn í ár þegar hún fór með sigur af hólmi í LPGA Taiwan Championship mótinu á LPGA-mótaröðinni. Hin 22ja ára gamla Tsegn lék samtals á 16 höggum undir pari og varð fimm höggum á undan Azahara Munoz frá Spáni og Amy Yang frá Suður-Kóreu.

Ég lék mjög vel í dag og tapaði ekki höggi. Ég vildi að þetta ár væri endalaust svo ég næði fleiri sigrum. Ég get orðið betri,“ sagði Tseng eftir sigurinn í dag en hún lék á 66 höggum eða sex höggum undir pari á lokahringnum.

Tseng hefur unnið sjö mót á LPGA-mótaröðinni í ár um unnið sér inn 2,9 milljónir dollara í verðlaunafé. Hún var nýlega valin kylfingur ársins á mótaröðinni og er svo sannarlega sú besta í heimi um þessar mundir.

Lokastaðan í mótinu