Fréttir | sunnudagur 25. september 2011 | 12:59

Kerr gaf leik sinn vegna meiðsla


Christie Kerr frá Bandaríkjunum ákvað að gefa leik sinn gegn Karen Stupples í tvímenning í Solheim-bikarnum vegna meiðsla. Þar með fékk Evrópa einn vinning á silfurfati keppni um hinn eftirsótta Solheim-bikar sem er keppni á milli Evrópu og Bandaríkjanna.

Hún gat ekki haldið á kylfunni, það var of sársaukafullt,“ sagði Rosie Jones fyrirliði Bandaríkjanna. Það eru meiðsli í úlnlið sem eru að plaga Kerr en hún hafði leikið alla fjóra leikina fyrir Bandaríkin í mótinu.

Ég er miður mín að ég get ekki leikið og hjálpað þjóð minni. Ég reyndi mitt besta en gat ekki haldið á kylfunni,“ sagði Kerr sem hafð skilaði 2½ stigi í hús nú þegar í mótinu. Evrópa var því komið í 9-8 forystu áður en keppni hófst í morgun. Alls þarf 14 stig til að tryggja sér Solheim-bikarinn.